Um síðuna

Þessi síða er sett upp fyrir vini og vandamenn og ókunna furðufugla sem hugsanlega áhuga á að lesa hana. Við erum bæði í framhaldsnámi í Pittsburgh í Bandaríkjunum. Palli er í tölvunördaskólanum Carnegie Mellon University að læra reikniritadót og Jóhanna er í University of Pittsburgh að læra líftölfræði.
Við búum í Shadyside hverfinu í Pittsburgh. Shadyside er notalegasta hverfi borgarinnar og með sinn eigin kósý miðbæ, með búðum og kaffihúsum. Í Shadyside bjuggu stáljöfrarnir (Carnegie, Mellon, Frick og Heinz) í upphafi síðustu aldar og ber hverfið þess glöggt merki, sérstaklega Fifth Avenue sem er þakið villum með gosbrunnum og látum.

Íbúðin okkar er á sjöttu hæð í blokk við Bayard Road og mjög vel staðsett. Palli er 10 mínútur að labba í skólann en Jóhanna 15 mínútur og að auki er stutt í Giant Eagle matvörubúðina en aðeins lengra í Whole Foods gæðamatvörubúðinu sem þessa dagana er að markaðsetja Ísland með slagorðunum - Iceland, the way life should be -, þeir eru nefnilega að fara að selja íslenskt lambakjöt - jibbí.

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527