- Fjögur skref og að setja hluti saman - 06 Sep 2008
-
Gréta Björg hefur að undanförnu verið að taka eitt skref óstudd. En í gær tók hún víst fjögur skref í leikskólanum og í morgun tók hún fjögur skref í viðurvist pabba síns. Ég hef ekki enn orðið vitni að þessu.
Núna er hún líka að reyna að setja hluti saman í stað þess að taka þá bara í sundur. Henni finnst rosalega gaman að taka allar bækurnar úr bókahillunni og reynir núna líka að setja þær aftur á sinn stað. Í morgun tókst henni að setja kubb með gati á stöng.
Leikskólinn átti 10 ára afmæli síðastliðinn mánudag og var haldið upp á það í gær. Við mættum auðvitað og hittum nokkra foreldra á bak við börnin sem við sjáum á hverjum degi.
-
2 svör
Fréttir
- Af Grétu Björgu - 27 Júl 2008
-
Við erum komin aftur heim til Pittsburgh og allt að komast á fullt. Gréta Björg fór í leikskólann daginn eftir að við komum. Hún var bara sæl og ánægð að vera komin aftur í leikskólann og kvartaði ekkert þegar hún var sett á gólfið þar, fór beint í að leika sér og brosti svo allan daginn.
Gréta Björg getur orðið ýmislegt of lærði nokkur ný trix á ferðalaginu. Núna kann hún til dæmis að leika týnd-fundin og virðist sjá mörg tækifæri til að leika leikinn. Hún notar taubleiu og færir hana fyrir andlit og svo upp fyrir haus. Hún felur sig bak við húsgögn og kíkir þegar við spyrjum Hvar er Gréta Björg en ekki fyrr. Henni finnst líka rosalega skemmtilegt að fara í eltingaleik og spennist öll upp og skríkir.
Daginn áður en við fluttum byrjaði hún að labba áfram með litla bílnum sem Esme lánaði henni en fram að því kunni hún bara að labba á hlið meðfram húsgögnum. Núna getur hún vel staðið óstudd og sleppir sér ef hún þarf að komast á milli húsgagna til að komast leiðar sinnar. Hún kýs samt frekar að skríða en labba enda kemst hún svo hratt yfir þannig. Hún er dálítið órögg með sig og sest yfirleitt fljótt niður ef hún hefur ekki stuðning og stendur ekki sjálf nema hún gleymi sér eða þegar hún heldur að hún hafi stuðning. Til dæmis hélt hún í símasnúruna um daginn.
Og, Gréta Björg er líka búin að læra að drekka sjálf úr glasi. Hún kann sem sagt að drekka úr alvöru glasi en ekki pela og ekki stútkönnu.
Að lokum smá tilkynning en þá gleymdist hleðslutækið fyrir stóru myndavélina á Íslandi þannig að það koma væntalega ekki myndir alveg strax, ekki fyrr en við erum búin að smella nokkrum myndum með litlu vélinni.
-
4 svör
- 9 mánaða skoðun - 03 Júl 2008
-
Gréta Björg verður 9 mánaða á laugardaginn og við fórum til læknsins í dag í vigtun og mælingu og smá skoðun sluppum við sprauturnar í þetta skiptið. Daman dafnar alveg eins og hún á að gera og er orðin 70.5 sm á lengd, rétt tæp 8 kg (7967 g) og höfuðmálið er 45.5 cm. Við eigum að koma aftur þegar skvísan verður eins árs og þá fær hún tvær bólusetningar auk þess sem tekin verður blóðprufa til að mæla hemoglóbín- og blýmagn.
Flutningarnir gengur nokkuð vel og við skiluðum íbúðinni okkar auðvitað miklu hreinni en þegar við fengum hana. Það er enn allt í drasli hjá okkur á nýja staðnum en við erum búin að þrífa sæmilega. Ég ætla að reyna að taka smá skurk núna áður en ég sæki Grétu Björgu aftur í leikskólann.
-
3 svör
- Formlegt - 23 Jún 2008
-
Við erum formlega búin að skrifa undir að leigusamningurinn okkar færist milli íbúða og gerðum líka samkomulag um að nokkrir hlutir verði lagaðir í nýju íbúðinni og að við fáum lyklana á föstudaginn en skilum okkar á mánudeginum. Við æltum að flytja allt smá dótið á föstudeginum og leiga u-haul á laugardeginum og þrífa svo íbúðina okkar á sunnudeginum. Gréta Björg mun líklega fara í heimsókn til Lydiu vinkonu sinnar á laugardeginum.
-
2 svör
- Flutningar í vændum - 22 Jún 2008
-
Við munum líklegast flytja í næstu viku upp í Squirrel hill og verðum þá mjög nálægt leikskólanum hennar Grétu Bjargar. Ég hef ekki tíma til að rekja alla söguna en fyrir helgina komumst við að því að það er músafaraldur í blokkinni okkar og ein kom inni í íbúðina okkar. Konan sem stjórnar þessum blokkum, virtist ekkert hafa neinar áhyggjur af þessu og hafði ekki látið framkvæmdastjórann vita, ekki heilbriðgiseftirlitið og ekki kallað á meindýraeyði og leyft músunum að fjölga sér og dreifa sér í tvo mánuði, en vandmálið byrjaði í samtengdri blokk. Hún reyndi bara að tala sig út úr þessu og sagði að þau væru að vinna í málinu og við þrýstum á hana og komumst að því að það eina sem verið væri að gera var að gildrur voru settar upp niðri í kjallara. Þegar fjórar mýs hafa sést á sjöttu hæð í næstu blokk og það heyrist í þeim inni í veggjunum þá getur það nú varla verið nóg. Við sögðum að það eina í stöðunni hjá þeim væri að rýma bygginguna og gasa, hún sagðist ekki vita um neitt fyrirtæki í Pittsburgh sem gerði það, þvílík afsökun. Oj barasta! Við hringdum strax í heilbrigðiseftirlitið og ætlum að koma okkur burt úr þessu ógeði.
-
7 svör
- Eyrnabólga - 18 Jún 2008
-
Við fórum með Grétu Björgu til læknisins í hádeginu. Hóstinn var lítið að minnka og þá kom í ljós eyrnabólga á byrjunarstigi í hægra eyra. Ætli þetta sé ekki fyrsta leikskólapestin hennar. Við fengum ávísað sýklalyfi og fyrirskipun um að kaupa rakatæki (humidifier) til að sjá til þess að loftið sé rakt í íbúðinni þannig að litla daman eigi auðveldara með að hósta ógeðinu upp. Hún er annars hress og kát, dugleg að drekka en ekki jafndugleg að borða, og tekur aðeins lengri blunda en hún er vön að gera.
-
5 svör
- Hósti, klappað og leitað - 16 Jún 2008
-
Litla ljúfan fór ekki í leikskólann í dag. Hún er með ljótan hósta. Ég held hún verði heima aftur á morgun. Ég vona bara að hún sofi ágætlega í nótt greyið litla. Gréta Björg er líka byrjuð að klappa. Hún skilur líka orðið klappa.
Ég verð líka að segja litla sögu af henni. Eftir viðtalið fór ég á fund með leiðbeinandanum mínum og Palli og Gréta Björg voru heima. Þau eru að leika sér inni í herbergi þegar Gréta Björg skíður fram og kíkir fyrir hornið þar sem skrifborðið er. Þegar hún sér enga mömmu kemur stór skeifa og svo byrjar hún að gráta. Mér finnst hún eitthvað svo klára að fatta að ef mamma er heima þá er hún annaðhvort að leika við mig eða að vinna við skrifborðið.
Að lokum langar okkur í Pittsburgh að óska frændfólkinu til hamingju. Helga Dóra, Kristín og Halldór er öll nýlega útskrifuð úr sínu námi.
-
6 svör
- Viðtal - 16 Jún 2008
-
Ég var að klára viðtalið núna rétt áðan. Það gekk bara mjög vel og í lokin fóru þeir að segja mér hvað Endinborg er frábær. Það er víst góðs viti því að þá er verið að reyna sannfæra umsækjandann um að koma. Það fengu víst 4 aðrir viðtal. Þeir fara í viðtal á fimmtudaginn og stuttu eftir það kemur svar. Ég held reyndar að það vinni svolítið á móti mér að ég mun líklega ekki geta gefið þeim svar fyrr en í nóvember. Palli fær ekki að vita fyrr en þá hvort hann fær styrkinn fyrir postdokinn í University of Edinburgh. Það snýst víst eitthvað um það að þeir mega ekki sækja um styrkinn of löngu áður en starfið á að byrja.
-
2 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527


