Nóvember, 2008

3 vikur á morgun og viðtal - 19 Nóv 2008

Á morgun verða aðeins 3 vikur í að við Gréta Björg leggjum í hann heim til Íslands. Við hlökkum mikið til en tíminn á eftir að vera fljótur að líða. Það er brjálað að gera hjá mér núna í lok misseris og meðal annars mun ég væntanlega þurfa að setja saman fyrirlestur og fara í atvinnuviðtal. Ég á eftir að heyra hvort dagarnir sem ég setti sem mögulega daga fyrir heimsóknina gangi upp, ef ekki þá verður viðtalið bara að bíða þar til eftir jól. Það er víst heilmikið prógramm að fara í svona viðtal. Það tekur allan daginn að hitta fólk og svo að halda fyrirlestur. Það er óhætt að segja að ég er frekar stressuð yfir þessu enda er þetta besti staðurinn í Bandaríkjunum á mínu sviði.


8 svör
Komin heim - 17 Nóv 2008

Ég kom heim af ráðstefnunni síðasta föstudag. Mikið var gott að hitta litluna mína og Palla minn, sérstaklega þar sem það var 5 tíma seinkun á fluginu til baka og ég var ekki komin heim fyrr en klukkan 2 eftir miðnætti.

Annars var bara ofsalega gama á ráðstefnunni. Það var mikið að gera, sérstaklega á fimmtudeginum en þá voru allir fyrirlestrarnir á mínu áhugasviði. Fyrstu fyrirlestrarnir voru frá 8-10.30. Frá 10.30-11.00 fór í í viðtal, svo klukkan 11-1 var næsta fyrirlestrahrina, svo viðtal frá 1-2, fyrirlestrar frá 2-4.30, og svo þurfti ég að standa við veggspjald frá 4.30-6.30. Veggspjaldið mitt var hins vegar á miðvikudeginum og var mjög vinsælt. Ég fór líka í eitt viðtal á miðvikudeginum og eitt á föstudeginum. Það gekk bara mjög vel, held ég, a.m.k. voru allir mjög almennilegir. Ég þarf að fara á einn staðinn fyrir jól í heimsókn, svo núna þarf ég að setja saman fyrirlestur…

Gréta Björg er hress og kát og var að vonum glöð að sjá mömmu sína aftur. Enn fleiri orð hafa bæst í safnið hjá henni og hún klifrar upp um allt og út um allt núna. Hún á svo að fara formlega yfir í toddler room 1. desember.


Engin svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527