Október, 2008

Amma, orðaforðinn og eyrnabólga - 21 Okt 2008

Amma Birna er komin og farin. Hún var í langri helgarheimsókn hjá okkur. Við nutum þess öll að hafa hana en ég held að það sé óhætt að segja að Gréta Björg hafi notið þess í botn. Við höfðum það mjög huggulegt og sýndum ömmu garðana og rólóvellina í hverfinu. Gréta Björg fékk afmælisgjöf frá ömmu og afa - þessa fínu dúkku, sem hún kallar baby upp á enskuna. Amma kenndi Grétu Björgu líka að skoppa skopparakringlunni en Gréta Björg var fljót að fatta að amma gat látið kringluna fara hraða og rétti ömmu sinni skopparakringluna og sagði aftur.

Það bætist hratt við orðafroðann hjá Grétu Björgu. Hún hermir dálítið eftir okkur en þó nokkur orð hafa líka komið upp úr þurru. Núna segir hún: mamma, pabbi, daddy (dadi) og mami (blanda af mamma og mommy), baby, dugleg (dueh), aftur, gerðu, og fleira og fleira sem ég man ekki í augnablikinu. Svo spjallar hún líka mikið og stundum heyrist manni að hún tali ensku en studnum íslensku, það fer eftir hrynjandinni hjá henni.

Litla daman náði að veikjast á meðan amma var í heimsókn og eftir mikil öskur drifum við okkur til læknisins sem fann eyrnabólgu í öðru eyranu. Sýklalyfin eru sem betur fer farin að virka þannig að hún er ekki lengur kvalin.


5 svör
1 árs myndir - 10 Okt 2008
IMG_5473.jpg
Að prófa nýja “hljóðfærið” frá ömmu og afa
IMG_5529.jpg
Á fullri ferð niður rennibrautina með Lydiu
IMG_5554.jpg
Hárið orðið rafmagnað eftir margar ferðir í rennibrautinni

4 svör
Jólagjöfin í ár - 09 Okt 2008

Það er spurning hvort jólagjöfin í ár verði ekki bara gjaldeyrir!?!

Annars er ég að fara á ráðstefnu um miðjan nóvember og mun fara í nokkur postdokk viðtöl í leiðinni. Það væri ágætt ef ég þyrfti ekki að ferðast mikið vegna atvinnuviðtala, ég er nefnilega ekkert mjög spennt fyrir því að fara frá litlu stelpunni minni. Eitt viðtalið sem ég fer í er fyrir postdokk á stað sem er bestur í Bandaríkjunum í því sem ég er að gera. Það lítur út fyrir að ég muni ekki hafa mikinn tíma til að fara á fyrirlestra á ráðstefnunni.

Palli var að fá nýja viftu í tölvuna. Vonandi nær hann að setja hana í tölvuna í kvöld svo að við getum sett inn myndir af afmælistelpunni.


3 svör
Fyrstu jaxlarnir - 04 Okt 2008

Við vorum að taka eftir fyrsta jaxlinum hennar Grétu Bjargar. Einn í efri góm er kominn vel niður og hinir þrír eru greinilega á leiðinni. Þetta eru jaxlarnir við hliðina augtönnunum. Augntennurnar eru samt ekki komnar. Núna er Gréta Björg því komin með níu tennur. Annars erum við bara að undirbúa afmæliskaffið sem verður á morgun, afmælisdaginn.


9 svör
Labbar um allt! - 02 Okt 2008

Gréta Björg kýs núna frekar að labba en skríða. Hingað til skreið hún milli staða ef hún var sitjandi en labbaði hef hún var standandi. Núna stendur hún upp til að labba af stað ef hún vill komast eitthvað. Þetta þýðir að hún fer að fara í heimsókn á litlu krakka deildina á leikskólanum. Það er nú samt eitthvað í það að hún hætti á ungbarnadeildinni.


4 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527