- Rólóstelpa - 16 Sep 2008
-
Grétu Björgu finnst ofsalega gaman að fara út á róló.


Gréta Björg labbaði heilmikið í leikskólanum í gær og tók 10 skref hérna heima. Þetta er allt að koma hjá henni. Núna vill hún ekki láta mata sig, hún vill sko engan graut og ekkert mauk. Hún borðar enn þá graut í leikskólanum en vill ekki neina ávexti né grænmeti. Allar hugmyndir um fingramat eru því vel þegnar :-) Núna borðar hún brauð með smjöri og osti, og stundum eplaskífum, hún borðar líka brauð með kæfu og henni finnst vatn æðislegt. Hún borðar líka stundum ólífur, vatnsmelónu, og epli en bara ef þau er heil og afhýdd.
Ein mynd aukamynd af krúttunni:

-
Jóhanna
7 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Vá hvað hún er mikil rúsína ;)
Sagði Heiða Jónsdóttir — 16 Sep 2008 @ 10:41
Æðislegar myndir af dömunni.
Knús og koss frá ömmu.
Sagði amma-Þorgerður — 16 Sep 2008 @ 1:03
Hún er algjört krútt :) bestu kveður frá öllum á Brúnastöðum
Sagði Bryndís — 16 Sep 2008 @ 2:51
Avókadó! Mínar voru vitlausar í það :)
Sagði Sigrún Helga Lund — 17 Sep 2008 @ 9:02
Já, best ég prófi avókadó aftur! Reyndi það fyrir tveim vikum en það var of sleipt. Hún varð pirruð á að koma því ekki upp í sig :-)
Sagði Jóhanna — 17 Sep 2008 @ 9:23
Sætasta stelpan í allri Ameríku!! og í svaka flottum galla :-)
Sagði Brynhildur — 18 Sep 2008 @ 5:11
Já, þetta er æðislegur galli - svo mjúkur og góður og hálsmálið opnast vel!
Sagði Jóhanna — 18 Sep 2008 @ 8:57