September, 2008

Leiðandi og labbandi - 28 Sep 2008

Grétu Björgu finnst ofsalega gaman að leiða okkur núna en getur alveg labbað sjálf. Læt fylgja nokkrar myndir frá róló fyrr í dag. Annars er litla daman með hósta, hún er eldhress á daginn en hóstar á nóttunni.

IMG_5402.jpg

Leiðandi mömmu

IMG_5409.jpg

Leiðandi pabba

IMG_5411.jpg

Labba sjálf

IMG_5412.jpg

Einbeitt

IMG_5413.jpg

Stefnir á rólurnar


4 svör
Jól, jól, jól! - 23 Sep 2008

Við erum búin að bóka ferð heim um jólin. Jeij jeij! Við stelpurnar leggjum í hann fimmtudaginn 11. des og pabbinn leggur í hann miðvikudaginn 17. des. Við förum svo öll til baka föstudaginn 9. janúar. Við stelpurnar verðum sem sagt á Íslandi í 4 vikur og ég ætla að slappa af og vinna eitthvað í ritgerðinni sjálfri en helst ekki í öðru.


4 svör
Rólóstelpa - 16 Sep 2008

Grétu Björgu finnst ofsalega gaman að fara út á róló.

IMG_5298.jpg

IMG_5308.jpg

Gréta Björg labbaði heilmikið í leikskólanum í gær og tók 10 skref hérna heima. Þetta er allt að koma hjá henni. Núna vill hún ekki láta mata sig, hún vill sko engan graut og ekkert mauk. Hún borðar enn þá graut í leikskólanum en vill ekki neina ávexti né grænmeti. Allar hugmyndir um fingramat eru því vel þegnar :-) Núna borðar hún brauð með smjöri og osti, og stundum eplaskífum, hún borðar líka brauð með kæfu og henni finnst vatn æðislegt. Hún borðar líka stundum ólífur, vatnsmelónu, og epli en bara ef þau er heil og afhýdd.

Ein mynd aukamynd af krúttunni:

IMG_5233.jpg


7 svör
Fjögur skref og að setja hluti saman - 06 Sep 2008

Gréta Björg hefur að undanförnu verið að taka eitt skref óstudd. En í gær tók hún víst fjögur skref í leikskólanum og í morgun tók hún fjögur skref í viðurvist pabba síns. Ég hef ekki enn orðið vitni að þessu.

Núna er hún líka að reyna að setja hluti saman í stað þess að taka þá bara í sundur. Henni finnst rosalega gaman að taka allar bækurnar úr bókahillunni og reynir núna líka að setja þær aftur á sinn stað. Í morgun tókst henni að setja kubb með gati á stöng.

Leikskólinn átti 10 ára afmæli síðastliðinn mánudag og var haldið upp á það í gær. Við mættum auðvitað og hittum nokkra foreldra á bak við börnin sem við sjáum á hverjum degi.


2 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527