- Af Grétu Björgu - 27 Júl 2008
-
Við erum komin aftur heim til Pittsburgh og allt að komast á fullt. Gréta Björg fór í leikskólann daginn eftir að við komum. Hún var bara sæl og ánægð að vera komin aftur í leikskólann og kvartaði ekkert þegar hún var sett á gólfið þar, fór beint í að leika sér og brosti svo allan daginn.
Gréta Björg getur orðið ýmislegt of lærði nokkur ný trix á ferðalaginu. Núna kann hún til dæmis að leika týnd-fundin og virðist sjá mörg tækifæri til að leika leikinn. Hún notar taubleiu og færir hana fyrir andlit og svo upp fyrir haus. Hún felur sig bak við húsgögn og kíkir þegar við spyrjum Hvar er Gréta Björg en ekki fyrr. Henni finnst líka rosalega skemmtilegt að fara í eltingaleik og spennist öll upp og skríkir.
Daginn áður en við fluttum byrjaði hún að labba áfram með litla bílnum sem Esme lánaði henni en fram að því kunni hún bara að labba á hlið meðfram húsgögnum. Núna getur hún vel staðið óstudd og sleppir sér ef hún þarf að komast á milli húsgagna til að komast leiðar sinnar. Hún kýs samt frekar að skríða en labba enda kemst hún svo hratt yfir þannig. Hún er dálítið órögg með sig og sest yfirleitt fljótt niður ef hún hefur ekki stuðning og stendur ekki sjálf nema hún gleymi sér eða þegar hún heldur að hún hafi stuðning. Til dæmis hélt hún í símasnúruna um daginn.
Og, Gréta Björg er líka búin að læra að drekka sjálf úr glasi. Hún kann sem sagt að drekka úr alvöru glasi en ekki pela og ekki stútkönnu.
Að lokum smá tilkynning en þá gleymdist hleðslutækið fyrir stóru myndavélina á Íslandi þannig að það koma væntalega ekki myndir alveg strax, ekki fyrr en við erum búin að smella nokkrum myndum með litlu vélinni.
-
Jóhanna
4 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Hún tekur stór stökk í þroskanum litla daman. Knús frá ömmu Birnu
Sagði amma Birna — 28 Júl 2008 @ 6:04
Bara sætust :)
Sagði Gréta — 28 Júl 2008 @ 10:33
Ég var að vafra eithvað um netið þegar ég rakst á fyrirsögnina : Jóhanna og Palli í Pittsburgh.
Og kannaðist nú við nöfnin, ákvað því að kíkja við. Þar sem ég hef nú ekki séð ykkur síðan í brúðkaupinu ? held ég. Líka gaman að fá að sjá nokkrar myndir af Grétu litlu. Hún er rosa sæt og algjört krútt!:D
Kær kveðja frá öllum á Ísafirði.
Sagði Sunna Karen — 13 Ágú 2008 @ 7:13
Það er svo gaman þegar þessi litlu kríli uppgötva feluleikinn. Það má sko leika endalaust með taubleiuna…
Sagði Stella — 14 Ágú 2008 @ 6:39