Júlí, 2008

Af Grétu Björgu - 27 Júl 2008

Við erum komin aftur heim til Pittsburgh og allt að komast á fullt. Gréta Björg fór í leikskólann daginn eftir að við komum. Hún var bara sæl og ánægð að vera komin aftur í leikskólann og kvartaði ekkert þegar hún var sett á gólfið þar, fór beint í að leika sér og brosti svo allan daginn.

Gréta Björg getur orðið ýmislegt of lærði nokkur ný trix á ferðalaginu. Núna kann hún til dæmis að leika týnd-fundin og virðist sjá mörg tækifæri til að leika leikinn. Hún notar taubleiu og færir hana fyrir andlit og svo upp fyrir haus. Hún felur sig bak við húsgögn og kíkir þegar við spyrjum Hvar er Gréta Björg en ekki fyrr. Henni finnst líka rosalega skemmtilegt að fara í eltingaleik og spennist öll upp og skríkir.

Daginn áður en við fluttum byrjaði hún að labba áfram með litla bílnum sem Esme lánaði henni en fram að því kunni hún bara að labba á hlið meðfram húsgögnum. Núna getur hún vel staðið óstudd og sleppir sér ef hún þarf að komast á milli húsgagna til að komast leiðar sinnar. Hún kýs samt frekar að skríða en labba enda kemst hún svo hratt yfir þannig. Hún er dálítið órögg með sig og sest yfirleitt fljótt niður ef hún hefur ekki stuðning og stendur ekki sjálf nema hún gleymi sér eða þegar hún heldur að hún hafi stuðning. Til dæmis hélt hún í símasnúruna um daginn.

Og, Gréta Björg er líka búin að læra að drekka sjálf úr glasi. Hún kann sem sagt að drekka úr alvöru glasi en ekki pela og ekki stútkönnu.

Að lokum smá tilkynning en þá gleymdist hleðslutækið fyrir stóru myndavélina á Íslandi þannig að það koma væntalega ekki myndir alveg strax, ekki fyrr en við erum búin að smella nokkrum myndum með litlu vélinni.


4 svör
9 mánaða skoðun - 03 Júl 2008

Gréta Björg verður 9 mánaða á laugardaginn og við fórum til læknsins í dag í vigtun og mælingu og smá skoðun sluppum við sprauturnar í þetta skiptið. Daman dafnar alveg eins og hún á að gera og er orðin 70.5 sm á lengd, rétt tæp 8 kg (7967 g) og höfuðmálið er 45.5 cm. Við eigum að koma aftur þegar skvísan verður eins árs og þá fær hún tvær bólusetningar auk þess sem tekin verður blóðprufa til að mæla hemoglóbín- og blýmagn.

Flutningarnir gengur nokkuð vel og við skiluðum íbúðinni okkar auðvitað miklu hreinni en þegar við fengum hana. Það er enn allt í drasli hjá okkur á nýja staðnum en við erum búin að þrífa sæmilega. Ég ætla að reyna að taka smá skurk núna áður en ég sæki Grétu Björgu aftur í leikskólann.


3 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527