Júní, 2008

Sumarið er komið og eitt og annað! - 08 Jún 2008

Við erum hálf-dösuð enn eftir að hafa farið út í hitann um miðjan dag í gær og vegna þess að hjá Grétu Björgu byrjaði dagurinn klukkan hálf fimm í morgun. Loftkælingin er á fullu og við höldum okkur inni.

Gréta Björg hefur fylgst vel með mömmu sinni yfir helgina og mamman má alls ekki hverfa úr augsýn. Vona samt að það gangi vel í leikskólanum á morgun. Það hefur gengið svo vel hingað til.

Litla daman stendur upp við allt núna, hún reisir sig upp við flatan vegg og sleppir annarri hendinni. Hún er alveg ótrúlega sterk. Það má eiginlega segja að hún sé mössuð, það er engin smábarnafita á henni bara vöðva.

Vilja allir vera svo vænir að skrifa í skilaboðin. Ég á örugglega eftir að sjá eftir að biðja um þetta en hvað um það! Ef það eru bara mamma og Gréta frænka sem lesa þá get ég alveg eins hætt að hafa dagbók á netinu (þ.e ýta á save í stað publish) þar sem heyri ég mjög oft í þeim.

Ég var að setja myndir af nokkrum burðarpokum í notkun. Ég er búin að uppgötva það að í strætóborg eins og Pittsburgh er alveg ómetanlegt að geta borið skvísuna jafnvel þó hún sé orðin þung, sérstaklega núna þegar við tökum alltaf strætó á leikskólann. Ég hlakka mikið til að fara með Grétu Björgu í fjallgöngur í sumar. Ég ætla sko sannarlega að hlaða batterín fyrir lokasprettinn í náminu.

Svo til gamans þá erum við Palli með nákvælega eins akademíska síðu

Það var eitt sem gladdi mig í síðustu viku. Ég gat troðið mér í gallabuxurnar mínar og keypt mér nýjar buxur í gamla númerinu mínu. Ég var löngu farin að sætta mig við að ná ekki af mér meðgöngukílónum (þau eru reyndar ekki öll farin).


11 svör
Meiri vinna, heimsókn og ferðalag - 02 Jún 2008

Ég var með ‘proposal’ síðasta miðvikudag og gekk bara vel og hef ég verið ‘admitted to candidacy’. Doktorsnefndin mín óskaði mér til hamingju með að ég mætti halda áfram og vinna enn þá meira! Ég þarf reyndar að athuga hvort þetta sé ekki örugglega komið í geng, deildinni minni og skrifinnskunni tókst nefnilega að týna plagginu um að ég væri búin að ná öllum ‘preliminary exams’ en til þess að verða að kandídat þarf að hafa náð þeim, propsoalið samþykkt og öllum kúrsum lokið. Skrifstofustjórinn í deildinni minni lofaði mér samt því að ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur þar sem þetta væru þeirra mistök.

Á fimmtudaginn fékk ég svo boð í atvinnuviðtal fyrir póstdokk stöðu í Edinburgh í Skotlandi. Þannig að ég fer í síma/skype viðtal þann 16. júní.

Eyjólfur afi var í heimsókn hjá okkur í seinustu viku og gerðum við margt skemmtilegt (þegar ég var ekki að vinna í fyrirlestrinum fyrir proposalið). Við fórum í göngu í Ohiopyle og fórum til Erie til að vera við útskrift Óðins bróður Palla en hann er skiptinemi þar. Palli og Eyjólfur afi skoðuðu líka skólana okkar og fóru tækjabúðir.

Allar fjórar framtennurnar í efri góm eru á leiðinni hjá Grétu Björgu. Það er farið að sjást í þrjár en sú fjórða er enn að brjótast niður. Hún var alveg rosalega bólgin og með blöðrur í gómnum og þar að auki blæddi hjá henni. Við létum smá deyfigel á góminn í fyrrinótt svo að hún gæti eitthvað sofi en hún öskraði bara út í eitt, anga skinnið.


3 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527