- Flutningar í vændum - 22 Jún 2008
-
Við munum líklegast flytja í næstu viku upp í Squirrel hill og verðum þá mjög nálægt leikskólanum hennar Grétu Bjargar. Ég hef ekki tíma til að rekja alla söguna en fyrir helgina komumst við að því að það er músafaraldur í blokkinni okkar og ein kom inni í íbúðina okkar. Konan sem stjórnar þessum blokkum, virtist ekkert hafa neinar áhyggjur af þessu og hafði ekki látið framkvæmdastjórann vita, ekki heilbriðgiseftirlitið og ekki kallað á meindýraeyði og leyft músunum að fjölga sér og dreifa sér í tvo mánuði, en vandmálið byrjaði í samtengdri blokk. Hún reyndi bara að tala sig út úr þessu og sagði að þau væru að vinna í málinu og við þrýstum á hana og komumst að því að það eina sem verið væri að gera var að gildrur voru settar upp niðri í kjallara. Þegar fjórar mýs hafa sést á sjöttu hæð í næstu blokk og það heyrist í þeim inni í veggjunum þá getur það nú varla verið nóg. Við sögðum að það eina í stöðunni hjá þeim væri að rýma bygginguna og gasa, hún sagðist ekki vita um neitt fyrirtæki í Pittsburgh sem gerði það, þvílík afsökun. Oj barasta! Við hringdum strax í heilbrigðiseftirlitið og ætlum að koma okkur burt úr þessu ógeði.
-
Jóhanna
7 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Gott hjá ykkur og gangi ykkur vel.
Knús-mamma.
Sagði amma-Þorgerður — 22 Jún 2008 @ 9:38
Skil vel að ykkur langi ekki að vera þarna, gangi ykkur vel í flutningunum. Heppin voruð þið að fá strax nýja íbúð!
Sagði Helga Dóra — 22 Jún 2008 @ 11:49
Passið bara að flytja ekki neina mús með ykkur :)
Sagði Gréta — 22 Jún 2008 @ 12:25
Já, það verður sko passað! Munum leita að götum á öll, kössum, skápum, sófanum, dýnunum o.s.frv.
Sagði Jóhanna — 22 Jún 2008 @ 1:01
Ekki gaman að lenda í þessu. Gangi ykkur vel í flutningunum
Sagði Bryndís — 22 Jún 2008 @ 1:52
Vibbi!!! Sem betur fer fáið þið íbúð fljótt :)
Sagði Sigrún Helga Lund — 22 Jún 2008 @ 2:52
Úff þetta er hrikalegt!
Fekk vænan hroll hérna í Trondheim um daginn þegar varað var við rottufaraldri. Meindýraeyðir fór samt strax í málið svo að ég hef ekki séð eina einustu á vappinu.
Gangi ykkur vel í flutningunum.
Kv frá Þrándi
Heiða og Aðalbjörg
Sagði Heiða Jónsdóttir — 22 Jún 2008 @ 3:02