Eyrnabólga - 18 Jún 2008

Við fórum með Grétu Björgu til læknisins í hádeginu. Hóstinn var lítið að minnka og þá kom í ljós eyrnabólga á byrjunarstigi í hægra eyra. Ætli þetta sé ekki fyrsta leikskólapestin hennar. Við fengum ávísað sýklalyfi og fyrirskipun um að kaupa rakatæki (humidifier) til að sjá til þess að loftið sé rakt í íbúðinni þannig að litla daman eigi auðveldara með að hósta ógeðinu upp. Hún er annars hress og kát, dugleg að drekka en ekki jafndugleg að borða, og tekur aðeins lengri blunda en hún er vön að gera.

Jóhanna Jóhanna

5 svör

  1. Vonandi jafnar snúllan sig fljótt

    Sagði Gréta — 19 Jún 2008 @ 2:26

  2. Það má einmitt búast við þessu þegar þau eru að byrja á leikskóla. Vonandi hristir hún þetta fljótt úr sér.

    Sagði Bryndís — 19 Jún 2008 @ 6:48

  3. Vonandi verður sú litla fljót að losna við eyrnabólguna og hóstann.

    Sagði Stella — 19 Jún 2008 @ 8:12

  4. Gaman að fá að fylgjast með ykkur svona líka langt í burtu. Vonandi nær Gréta Björg sér fljótt. Hún er geinilega hörkudugleg eins og foreldrarnir.

    Sagði Sólveig og Gunnar — 19 Jún 2008 @ 4:31

  5. Takk fyrir kveðjurnar. Litla daman er hætt að hósta og með örlítið nefrennsli og farin aftur á leikskólann.

    Sagði Jóhanna — 20 Jún 2008 @ 1:14

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527