- Hósti, klappað og leitað - 16 Jún 2008
-
Litla ljúfan fór ekki í leikskólann í dag. Hún er með ljótan hósta. Ég held hún verði heima aftur á morgun. Ég vona bara að hún sofi ágætlega í nótt greyið litla. Gréta Björg er líka byrjuð að klappa. Hún skilur líka orðið klappa.
Ég verð líka að segja litla sögu af henni. Eftir viðtalið fór ég á fund með leiðbeinandanum mínum og Palli og Gréta Björg voru heima. Þau eru að leika sér inni í herbergi þegar Gréta Björg skíður fram og kíkir fyrir hornið þar sem skrifborðið er. Þegar hún sér enga mömmu kemur stór skeifa og svo byrjar hún að gráta. Mér finnst hún eitthvað svo klára að fatta að ef mamma er heima þá er hún annaðhvort að leika við mig eða að vinna við skrifborðið.
Að lokum langar okkur í Pittsburgh að óska frændfólkinu til hamingju. Helga Dóra, Kristín og Halldór er öll nýlega útskrifuð úr sínu námi.
-
Jóhanna
6 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Hún er ótrúleg litla ljúfan.
Amma-Þorgerður.
Sagði Amma-Þorgerður — 17 Jún 2008 @ 12:33
Takk fyrir kveðjuna:D
Sagði Helga Dóra — 17 Jún 2008 @ 2:26
Frábær burðarpokasíða! :) Komið í bookmarks :)
Sagði Arndís Dúnja — 18 Jún 2008 @ 4:14
þið takið ykkur jafnvel út í öllum gerðum af pokum/sjölum og skjóðum :) Frábært hvað þið eruð dugleg að nota þá.
Sagði amma Birna — 18 Jún 2008 @ 11:17
Takk :-)
Sagði Jóhanna — 18 Jún 2008 @ 12:16
Takk fyrir :)
Sagði Kristín — 18 Jún 2008 @ 1:07