Ný vinkona, jafnvægi, söngur og klapp - 13 Jún 2008

Á mánudaginn byrjar ný stelpa á svipuðum aldri og Gréta Björg á ungbarnadeildinni í leikskólanum. Hún var í heimsókn með foreldrum sínum í gær og Gréta Björg tók víst mjög vel á móti henni, svona eftir að hún var búin að taka þetta nýja andlit út, og þær sátu saman og léku sér heillengi á gólfinu. Kennararnir sögðu að þær hafi verið svo krúttlegar saman og að nýja stelpan væri líka ljóshærð.

Gréta Björg er með alveg ótrúlegt jafnvægi. Í gær prófaði Palli að sleppa henni aðeins og hún stóð grafkyrr í 5 sekúndur. Hún missti ekki jafnvægið fyrr en mamman fór að klappa fyrir henni. Við ætlum að reyna að ná af henni góðu myndbandi, það þarf svo sannarlega og festa þetta á filmu. Gréta Björg sönglaði heilmikið í gær þegar við vorum að borða og sungum Allur matur.

Hún er líka alveg farin að fatta fyrir hverju við klöppum og gerir gjarnan sömu hlutina aftur og aftur og horfir svo á okkur spyrjandi augum, hvort við ætlum ekki að klappa. Auðvitað uppsker hún klapp í hvert einasta skipti :-)

Jóhanna Jóhanna

3 svör

  1. Frábærlega dugleg. Sannarlega ástæða til að klappa fyrir henni :)

    Sagði amma/mamma/tengdó/Birna — 13 Jún 2008 @ 1:41

  2. Hún er algjört krútt

    Sagði Bryndís — 13 Jún 2008 @ 2:05

  3. Hún er æðisleg lita daman hún
    Gréta Björg.
    Knús frá ömmu-Þorgerði.

    Sagði amma-Þorgerður — 13 Jún 2008 @ 3:33

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527