Ekki aftur snúið - 11 Jún 2008

Ég var rétt í þessu að senda glærurnar fyrir post-dokk viðtalið sem ég fer í á mánudaginn. Það verður fróðlegt að vera með fyrirlestur í gegnum skype. Viðtalið á að vera um 55 mínútur en fyrirlesturinn á aðeins vera 10-15 mínútur. Ég kom því ekki miklu fyrir. Þetta er bara svona listi, ég gerði þetta og þetta. Þetta verður a.m.k. góð æfing fyrir framhaldið.

Fyrir þó nokkru síðan fékk ég hugmynd sem ég ætla að skjalfesta hér með því að ég efast um að ég muni koma henni í framkvæmd. Þið hafið kannski tekið eftir því hvað fréttirnar á mbl eru hrikalega illa skrifaðar og þá er ég bara að tala um málfræðilega og þær sem eru þýddar illa þýddar. Ég veit vel að málfræðin, stíllinn og stafsetningin mín er ekki fullkomin, langt frá því, en mér bara blöskrar Mogginn. Ég er farin að fylgjast með fréttum að heiman á RUV, þeir virðast skárri. Hugmyndin er sem sagt sú að setja upp Moggablogg sem tengir við fréttir og leiðréttir málfarið. Vandamálið er bara að ég er ekki sú besta í þetta og ég hef heldur ekki tíma. Ef einhver vill stela þessari hugmynd og gerast “wisserbesser” endilega gera það.

Jóhanna Jóhanna

3 svör

  1. Gangi þér rosalega vel á máudaginn

    Sagði Bryndís — 12 Jún 2008 @ 3:24

  2. Er alveg sammála þér með mbl, þetta er umtalað á vinnustaðnum og í skólanum hve illa fréttirnar eru skrifaðar. Spurning hvort að þetta sé ekki allt of mikil vinna þar sem svo rosalega margar fréttir eru illa skrifaðar;D

    Sagði Helga Dóra — 12 Jún 2008 @ 12:00

  3. Sammála ykkur frænkur, er oft að furða mig á mbl.is

    Sagði Dóra Gunn — 27 Jún 2008 @ 4:29

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527