Pólítík - 09 Jún 2008

Tvö atriði:

Hillary hefur hætt baráttunni. Við héldum með henni en ég er samt mjög sátt við Obama, held hann eigi góða möguleika á að vinna í haust. Ég vona bara að demókratar klúðri þessu ekki núna eins og alltaf.

Strætó í Reykjavík. Mér finnst ég svo oft lesa þau rök gegn því að strætó geti gengið í Reykjavík að Reykjavík sé svo dreifð. Það er bara bull. Pittsburgh er dreifðari og hér eru fínar samgöngur. Strætó er samt rekinn með tapi hér en það væri bara svo rosalega vont fyrir borgina að hætta að reka strætó því að þá væri fullt af fólki sem kæmist ekki til vinnu og borgin má ekki við því að fólk flytjist á brott. Hér eru líka engin sér stæði fyrir strætó við strætóskýlin, umferðin bíður bara. Um helgar tengja strætisvagnar alla helstu verslunarkjarnana saman. Það eru líka nóg af strætóstoppistöðvum, á hverju einasta götuhorni. Mér finnst skrítið að þegar við erum á Íslandi finnst mér alveg óhugsandi að taka strætó en þegar mamma kemur hingað finnst henni ekkert mál að hoppa upp í strætó og skella sér á Waterfront verslunarkjarnann.

Jóhanna Jóhanna

2 svör

  1. Sammála. Fólk tekur straetó um allan Skán, og finnst ekkert ad tví. Legg til ad vegaframkvaemdum verdi haett i Reykjavik svo tad verdi pirrandi ad vera a bil og folk fari ad taka straeto. Tad virkar hér allavega.

    Sagði Gréta — 10 Jún 2008 @ 5:03

  2. Nákvæmlega! Ég hef engan Íslending heyrt kvarta yfir því að taka strætó í útlöndum, svo snobb er léleg afsökun. Það sem skiptir máli er kerfi sem virkar!

    Sagði Sigrún Helga Lund — 10 Jún 2008 @ 4:54

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527