- Meiri vinna, heimsókn og ferðalag - 02 Jún 2008
-
Ég var með ‘proposal’ síðasta miðvikudag og gekk bara vel og hef ég verið ‘admitted to candidacy’. Doktorsnefndin mín óskaði mér til hamingju með að ég mætti halda áfram og vinna enn þá meira! Ég þarf reyndar að athuga hvort þetta sé ekki örugglega komið í geng, deildinni minni og skrifinnskunni tókst nefnilega að týna plagginu um að ég væri búin að ná öllum ‘preliminary exams’ en til þess að verða að kandídat þarf að hafa náð þeim, propsoalið samþykkt og öllum kúrsum lokið. Skrifstofustjórinn í deildinni minni lofaði mér samt því að ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur þar sem þetta væru þeirra mistök.
Á fimmtudaginn fékk ég svo boð í atvinnuviðtal fyrir póstdokk stöðu í Edinburgh í Skotlandi. Þannig að ég fer í síma/skype viðtal þann 16. júní.
Eyjólfur afi var í heimsókn hjá okkur í seinustu viku og gerðum við margt skemmtilegt (þegar ég var ekki að vinna í fyrirlestrinum fyrir proposalið). Við fórum í göngu í Ohiopyle og fórum til Erie til að vera við útskrift Óðins bróður Palla en hann er skiptinemi þar. Palli og Eyjólfur afi skoðuðu líka skólana okkar og fóru tækjabúðir.
Allar fjórar framtennurnar í efri góm eru á leiðinni hjá Grétu Björgu. Það er farið að sjást í þrjár en sú fjórða er enn að brjótast niður. Hún var alveg rosalega bólgin og með blöðrur í gómnum og þar að auki blæddi hjá henni. Við létum smá deyfigel á góminn í fyrrinótt svo að hún gæti eitthvað sofi en hún öskraði bara út í eitt, anga skinnið.
-
Jóhanna
3 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

spennó, spennó
Sagði Gréta — 02 Jún 2008 @ 9:07
Greinilega allt á fullu hjá ykkur.
Knús. Mamma.
Sagði amma-Þorgerður — 02 Jún 2008 @ 11:33
En spennandi! Edinborg er æðisleg, það litla sem ég hef séð af henni :)
Sagði Arndís — 02 Jún 2008 @ 12:20