Júní, 2008

Formlegt - 23 Jún 2008

Við erum formlega búin að skrifa undir að leigusamningurinn okkar færist milli íbúða og gerðum líka samkomulag um að nokkrir hlutir verði lagaðir í nýju íbúðinni og að við fáum lyklana á föstudaginn en skilum okkar á mánudeginum. Við æltum að flytja allt smá dótið á föstudeginum og leiga u-haul á laugardeginum og þrífa svo íbúðina okkar á sunnudeginum. Gréta Björg mun líklega fara í heimsókn til Lydiu vinkonu sinnar á laugardeginum.


2 svör
Flutningar í vændum - 22 Jún 2008

Við munum líklegast flytja í næstu viku upp í Squirrel hill og verðum þá mjög nálægt leikskólanum hennar Grétu Bjargar. Ég hef ekki tíma til að rekja alla söguna en fyrir helgina komumst við að því að það er músafaraldur í blokkinni okkar og ein kom inni í íbúðina okkar. Konan sem stjórnar þessum blokkum, virtist ekkert hafa neinar áhyggjur af þessu og hafði ekki látið framkvæmdastjórann vita, ekki heilbriðgiseftirlitið og ekki kallað á meindýraeyði og leyft músunum að fjölga sér og dreifa sér í tvo mánuði, en vandmálið byrjaði í samtengdri blokk. Hún reyndi bara að tala sig út úr þessu og sagði að þau væru að vinna í málinu og við þrýstum á hana og komumst að því að það eina sem verið væri að gera var að gildrur voru settar upp niðri í kjallara. Þegar fjórar mýs hafa sést á sjöttu hæð í næstu blokk og það heyrist í þeim inni í veggjunum þá getur það nú varla verið nóg. Við sögðum að það eina í stöðunni hjá þeim væri að rýma bygginguna og gasa, hún sagðist ekki vita um neitt fyrirtæki í Pittsburgh sem gerði það, þvílík afsökun. Oj barasta! Við hringdum strax í heilbrigðiseftirlitið og ætlum að koma okkur burt úr þessu ógeði.


7 svör
Eyrnabólga - 18 Jún 2008

Við fórum með Grétu Björgu til læknisins í hádeginu. Hóstinn var lítið að minnka og þá kom í ljós eyrnabólga á byrjunarstigi í hægra eyra. Ætli þetta sé ekki fyrsta leikskólapestin hennar. Við fengum ávísað sýklalyfi og fyrirskipun um að kaupa rakatæki (humidifier) til að sjá til þess að loftið sé rakt í íbúðinni þannig að litla daman eigi auðveldara með að hósta ógeðinu upp. Hún er annars hress og kát, dugleg að drekka en ekki jafndugleg að borða, og tekur aðeins lengri blunda en hún er vön að gera.


5 svör
Hósti, klappað og leitað - 16 Jún 2008

Litla ljúfan fór ekki í leikskólann í dag. Hún er með ljótan hósta. Ég held hún verði heima aftur á morgun. Ég vona bara að hún sofi ágætlega í nótt greyið litla. Gréta Björg er líka byrjuð að klappa. Hún skilur líka orðið klappa.

Ég verð líka að segja litla sögu af henni. Eftir viðtalið fór ég á fund með leiðbeinandanum mínum og Palli og Gréta Björg voru heima. Þau eru að leika sér inni í herbergi þegar Gréta Björg skíður fram og kíkir fyrir hornið þar sem skrifborðið er. Þegar hún sér enga mömmu kemur stór skeifa og svo byrjar hún að gráta. Mér finnst hún eitthvað svo klára að fatta að ef mamma er heima þá er hún annaðhvort að leika við mig eða að vinna við skrifborðið.

Fyrir áhugasama!

Að lokum langar okkur í Pittsburgh að óska frændfólkinu til hamingju. Helga Dóra, Kristín og Halldór er öll nýlega útskrifuð úr sínu námi.


6 svör
Viðtal - 16 Jún 2008

Ég var að klára viðtalið núna rétt áðan. Það gekk bara mjög vel og í lokin fóru þeir að segja mér hvað Endinborg er frábær. Það er víst góðs viti því að þá er verið að reyna sannfæra umsækjandann um að koma. Það fengu víst 4 aðrir viðtal. Þeir fara í viðtal á fimmtudaginn og stuttu eftir það kemur svar. Ég held reyndar að það vinni svolítið á móti mér að ég mun líklega ekki geta gefið þeim svar fyrr en í nóvember. Palli fær ekki að vita fyrr en þá hvort hann fær styrkinn fyrir postdokinn í University of Edinburgh. Það snýst víst eitthvað um það að þeir mega ekki sækja um styrkinn of löngu áður en starfið á að byrja.


2 svör
Ný linsa, nýtt sling, nývöknuð - 13 Jún 2008
Tvær myndir teknar með nýju linsunni. Núna höfum við algjörlega lagt linsunni sem fylgdi með vélinni.
IMG_3651.jpg
Nývöknuð og skellir saman kubbunum
IMG_3658.jpg
Nýja fína bleika dupioni silki slingið okkar

7 svör
Ný vinkona, jafnvægi, söngur og klapp - 13 Jún 2008

Á mánudaginn byrjar ný stelpa á svipuðum aldri og Gréta Björg á ungbarnadeildinni í leikskólanum. Hún var í heimsókn með foreldrum sínum í gær og Gréta Björg tók víst mjög vel á móti henni, svona eftir að hún var búin að taka þetta nýja andlit út, og þær sátu saman og léku sér heillengi á gólfinu. Kennararnir sögðu að þær hafi verið svo krúttlegar saman og að nýja stelpan væri líka ljóshærð.

Gréta Björg er með alveg ótrúlegt jafnvægi. Í gær prófaði Palli að sleppa henni aðeins og hún stóð grafkyrr í 5 sekúndur. Hún missti ekki jafnvægið fyrr en mamman fór að klappa fyrir henni. Við ætlum að reyna að ná af henni góðu myndbandi, það þarf svo sannarlega og festa þetta á filmu. Gréta Björg sönglaði heilmikið í gær þegar við vorum að borða og sungum Allur matur.

Hún er líka alveg farin að fatta fyrir hverju við klöppum og gerir gjarnan sömu hlutina aftur og aftur og horfir svo á okkur spyrjandi augum, hvort við ætlum ekki að klappa. Auðvitað uppsker hún klapp í hvert einasta skipti :-)


3 svör
Ekki aftur snúið - 11 Jún 2008

Ég var rétt í þessu að senda glærurnar fyrir post-dokk viðtalið sem ég fer í á mánudaginn. Það verður fróðlegt að vera með fyrirlestur í gegnum skype. Viðtalið á að vera um 55 mínútur en fyrirlesturinn á aðeins vera 10-15 mínútur. Ég kom því ekki miklu fyrir. Þetta er bara svona listi, ég gerði þetta og þetta. Þetta verður a.m.k. góð æfing fyrir framhaldið.

Fyrir þó nokkru síðan fékk ég hugmynd sem ég ætla að skjalfesta hér með því að ég efast um að ég muni koma henni í framkvæmd. Þið hafið kannski tekið eftir því hvað fréttirnar á mbl eru hrikalega illa skrifaðar og þá er ég bara að tala um málfræðilega og þær sem eru þýddar illa þýddar. Ég veit vel að málfræðin, stíllinn og stafsetningin mín er ekki fullkomin, langt frá því, en mér bara blöskrar Mogginn. Ég er farin að fylgjast með fréttum að heiman á RUV, þeir virðast skárri. Hugmyndin er sem sagt sú að setja upp Moggablogg sem tengir við fréttir og leiðréttir málfarið. Vandamálið er bara að ég er ekki sú besta í þetta og ég hef heldur ekki tíma. Ef einhver vill stela þessari hugmynd og gerast “wisserbesser” endilega gera það.


3 svör
Óþarfa áhyggjur - 10 Jún 2008

Marvelous monday stóð á skýrslunni fyrir daginn í leikskólanum. Gréta Björg átti víst best daginn sinn hingað til og svaf meira að segja í klukkutíma tvisvar sinnum yfir daginn en hún er vön að taka stutta lúra, mesta 30 mínútur. Hún var dugleg að leika sér og skríða á eftir kennurunum og var hress og kát þegar ég kom og sótti hana. Palli og hún eru á leið í leikskólann í rigningunni og þrumunum og eldingunum núna. Ég hlakka til að fá að heyra hvort hrikalega ljóti regnponchoinn virki og þau komist þurr á leiðarenda.


6 svör
Pólítík - 09 Jún 2008

Tvö atriði:

Hillary hefur hætt baráttunni. Við héldum með henni en ég er samt mjög sátt við Obama, held hann eigi góða möguleika á að vinna í haust. Ég vona bara að demókratar klúðri þessu ekki núna eins og alltaf.

Strætó í Reykjavík. Mér finnst ég svo oft lesa þau rök gegn því að strætó geti gengið í Reykjavík að Reykjavík sé svo dreifð. Það er bara bull. Pittsburgh er dreifðari og hér eru fínar samgöngur. Strætó er samt rekinn með tapi hér en það væri bara svo rosalega vont fyrir borgina að hætta að reka strætó því að þá væri fullt af fólki sem kæmist ekki til vinnu og borgin má ekki við því að fólk flytjist á brott. Hér eru líka engin sér stæði fyrir strætó við strætóskýlin, umferðin bíður bara. Um helgar tengja strætisvagnar alla helstu verslunarkjarnana saman. Það eru líka nóg af strætóstoppistöðvum, á hverju einasta götuhorni. Mér finnst skrítið að þegar við erum á Íslandi finnst mér alveg óhugsandi að taka strætó en þegar mamma kemur hingað finnst henni ekkert mál að hoppa upp í strætó og skella sér á Waterfront verslunarkjarnann.


2 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527