- Leikskóladama - 20 Maí 2008
-
Það er eins og Gréta Björg hafi ekki gert annað en að vera á leikskóla. Hún skemmti sér konunglega í gær og tók ekkert eftir mömmu sinni þegar hún kvaddi og heldur ekki eftir pabba sínum sem var hjá henni allan tímann. Hún leyfði fóstrunni að gefa sér graut og svæfa sig en vildi ekki pela.
Hún á eftir að læra að vera frek. Hún var víst undarndi þegar aðrir krakkar rifu af henni dót. Henni fannst líka mjög skrítið að sjá eina stelpuna rífa allt dótið úr dótahillunni og kasta á gólfið án þess að skoða það.
Það gekk svo vel í gær að við ákváðum bara strax að skilja hana eina eftir í dag. Palli fór með hana í morgun og ég ætla að sækja hana í hádeginu. Svo sjáum við til hvort og hvenær við lengjum daginn - það fer eftir því hvernig gengur í dag.
-
Jóhanna
6 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Dugleg :)
Sagði Gréta — 20 Maí 2008 @ 10:59
Frábært hvað það gengur vel.
Sagði Bryndís og Helga Dóra — 20 Maí 2008 @ 12:47
Það gekk líka voða vel í dag. Hún drakk meira að segja smá pela. Var orðin pirruð um hálf eitt eins og í gær, þannig að við höfum hálfan dag aftur á morgun. Stefnan er að ná 6 tímum frá 9-3.
Sagði Jóhanna — 20 Maí 2008 @ 12:52
Dugleg lítil ljúfa.
Knús frá ömmu Þorgerði
Sagði amma-Þorgerður — 20 Maí 2008 @ 1:41
Vá hvað hún er dugleg! Gangi ykkur vel með áframhaldið.
Sagði Stella — 22 Maí 2008 @ 4:27
Sú er ekki lengi að læra á nýjar aðstæður - kemur mér svo sem ekkert á óvart :)
Sagði amma Birna — 22 Maí 2008 @ 9:35