- Leikskóladama - 20 Maí 2008
-
Það er eins og Gréta Björg hafi ekki gert annað en að vera á leikskóla. Hún skemmti sér konunglega í gær og tók ekkert eftir mömmu sinni þegar hún kvaddi og heldur ekki eftir pabba sínum sem var hjá henni allan tímann. Hún leyfði fóstrunni að gefa sér graut og svæfa sig en vildi ekki pela.
Hún á eftir að læra að vera frek. Hún var víst undarndi þegar aðrir krakkar rifu af henni dót. Henni fannst líka mjög skrítið að sjá eina stelpuna rífa allt dótið úr dótahillunni og kasta á gólfið án þess að skoða það.
Það gekk svo vel í gær að við ákváðum bara strax að skilja hana eina eftir í dag. Palli fór með hana í morgun og ég ætla að sækja hana í hádeginu. Svo sjáum við til hvort og hvenær við lengjum daginn - það fer eftir því hvernig gengur í dag.
-
6 svör
Maí, 2008
- Leikskólapláss og byrjuð að skríða - 13 Maí 2008
-
Það er óhætt að segja að Gréta Björg sé byrjuð að skríða og getur meira að segja farið nokkuð hratt yfir. Hún fattar samt ekki að hún getur elt mömmu sína núna en hún skríður og nær í dót.
Núna stendur hún líka upp við allt. Getur togað sig upp við sófaborðið, borðstofustólana, sófann, fótinn á borðstofuborðinu, þvottagrindina og svo mætti lengi telja. Við megum ekki líta undan eitt sekúndubrot (bókstaflega).
Í gær fengum við boð um leikskólapláss og mun Gréta Björg (og mamma hennar) byrja í aðlögun á mánudaginn. Við fórum í heimsókn í gær og leist bara nokkuð vel á. Vinir okkar eru með stelpuna sína þarna þannig við vitum aðeins að hverju við göngum.
-
2 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
