Herma eftir hljóðum og tvö skrið - 30 Apr 2008

Við áttuðum okkur á því í morgun að Gréta Björg er byrjuð að herma örlítið eftir því sem við segjum. Um daginn sagði ég úps og þá sagði litlan ubs. Í morgun bauð ég Palla ristað brauð og hann sagði já takk og þá sagði litlan jada.

Gréta Björg orðin svo fjörmikil að nú hefur skiptidýnunni verið komið fyrir niður á gólfi. Þorum einfaldlega ekki öðru og hefðum eflaust átt að vera löngu búin að þessu. Hún heldur að allt sé til þess gert að tosa sig upp, má þar nefna hárið hennar mömmu, gleraugun, bleian, bogarnir á leikteppinu og margt fleira.

Núna er hún alveg að fara að skríða. Í gær færði hún sig eitt skref á fram en í dag tvo og hefði eflaust farið fleiri ef ég hefði ekki fjarlægt tölvuna (með skype myndavélinni og ömmu og afa á línunni). Þegar hún sá í hvað stefndi þá ákvað mín að hætta að einbeita sér og skriðinu og kasta sér fram að tölvunni. Það eru helst hendurnar sem eru að vefjast fyrir Grétu Björgu í skriðinu. Hún kemur sér upp á hnén eins og ekkert sé og hreyfir fæturna en hendurnar hafa verið fastar þangað til í gær.

Jóhanna Jóhanna

Eitt svar

  1. hún verður bara farin að labba þegar þið komið til mín…

    Sagði Gréta — 01 Maí 2008 @ 2:31

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527