- Hafragrautur fyrir fjölskylduna - 29 Apr 2008
-
Þriðja grautartegundin hefur bæst á matseðil Grétu Bjargar. Núna fær öll fjölskyldan sér hafragraut á morgnana. Perur og grænar baunir hafa líka bæst á matseðilinn. Næst á dagskrá er að prófa mango.
Yfir í annað. Misserið er búið hjá mér en að þessu sinni er alveg sérstakt tilefni til að vera kátur. Ég er nefnilega búin með alla skyldukúrsa og nóg af valkúrsum og hef því náð tilsettum einingafjölda.
Afi Jón á afmæli í dag og við óskum honum aftur til hamingju með daginn. Við tókum þátt í afmæliskaffinu á sumardaginn fyrsta í gegnum skype og vorum meira að segja með á hópmynd.
-
Jóhanna
4 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Flott að vera búin með alla kúrsana! Takk fyrir sendinguna, leggst í þetta um helgina :)
Sagði Gréta — 29 Apr 2008 @ 11:24
Rosalega hefur pakkin verið fljótur á leiðinni. Frábært.
Sagði Jóhanna — 29 Apr 2008 @ 7:48
Ú - til hamingju með einingafjöldann:)
Sagði Tóta — 30 Apr 2008 @ 5:25
… og hópmyndin tókst vel.
Til hamingju með þennan áfanga.
Sagði amma Birna — 30 Apr 2008 @ 4:07