Upp af maga - 25 Apr 2008

Það er allt á fullri ferð í þroskanum hjá Grétu Björgu núna. Núna finnst mér augljóst af hverju hún sefur svona eins illa og hún hefur gert. Hún hefur greinilega verið að undirbúa að gera margt á sama tíma.

Ég hef nú samt ekki verið að stressa mig neitt mikið á þessu með svefninn enda vissi ég sjálf að þetta myndi ekki vara að eilífu (!) og viti menn síðustu nætur hafa verið mjög góðar og hún aðeins vaknað einu sinni milli miðnættis og 7.

Í gær settist hún upp af maganum. Við héldum að þetta væri bara tilviljun en núna rétt áðan þá lá hún á gólfi að leika sér og svo allt í einu á meðan ég er ekki að horfa er hún sest upp og við það að þetta aftur fyrir sig - hangir með aðra hendina í einu dótinu á leikteppinu og stiður sig í gólfið með hinn. Jæja, þarf að fara hjálpa minni úr ógöngunum sem hún er komin í undir sófa.

Jóhanna Jóhanna

2 svör

  1. Hún er alveg ótrúleg litla ljúfan hún Gréta Björg. Knús frá ömmu-Þorgerði.

    Sagði Amma-Þorgerður — 25 Apr 2008 @ 10:26

  2. Hún verður komin á fleygiferð um allt áður en tvær vikur eru liðnar spái ég :)

    Sagði amma Birna — 25 Apr 2008 @ 5:18

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527