- Lasin ljúfa - 17 Apr 2008
-
Gréta Björg er lasin. Hún var heldur óróleg og lystarlaus í gær og í gærkvöldi var hún komin með 39 stiga hita, smá uppgang og niðurgang. Anga skinnið. Svo fór hitinn yfir 39 og þá fékk hún tylanol að læknisráði. Klukkan fimm í morgun var hitinn kominn niður í 5 kommur og núna upp í 8 kommur. Hún er miklu hressari en í gær en samt svolítið lítil í sér. Hún fór til dæmis að hágráta þegar pabbi hennar hnerraði. Við eigum bara að fylgjast með hitanum og passa að hún ofþorni ekki. Fengum ýmis ráð hvernig hægt er að vita að börn séu að ofþorna, ég vissi til dæmis ekki að ef að það er smá bunga niður í gatið á höfuðkúpunni þá er barnið að ofþorna. Ljúfan svaf því upp í nótt og fékk að nota brjóstið fyrir snuð svo að hún svaf ágætlega.
-
Jóhanna
4 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Vona að litla ljúfa sé að ná sér.
Knús og kossar frá ömmu og afa í Holtsbúðinni.
Sagði amma-Þorgerður — 17 Apr 2008 @ 2:11
Batakveðjur frá Lundi
Sagði Gréta — 18 Apr 2008 @ 1:54
Vonandi batnar henni sem allra fyrst. Kveðja frá Brúnastöðum
Sagði Bryndís — 18 Apr 2008 @ 3:36
Æ greyið litla, vona að hún nái sér fljótt. Tíminn líður svo svakalega hægt eitthvað þegar þau eru veik, eins og hann flýgur annars áfram :)
Sagði Dóra Gunn — 21 Apr 2008 @ 6:45