Ákveðin ung dama - 06 Apr 2008

Gréta Björg veit svo sannarlega hvað hún vill.

Eitt dæmi er hvernig hún vill sofna á kvöldin. Hún vill sofna í mömmuhol með mömmu við hliðina á sér og súpa brjóstið um leið. Í gærkvöldi bauð ég henni að súpa frammi í stofu en ekki vildi hún það og þar sem var komin háttatíma ákvað ég að prófa að leggja hana bara inn og ekki gekk það svo ég prófaði að vagga henni og ekki gekk það svo lagði ég hana í rúmið okkar og mín varð svona líka sæl, brosti út að eyrum, opnaði svo munnin og beið eftir brjóstinu. Eftir það sofnaði hún á tæpri mínútu.

Annað dæmi var í morgun þegar hún fékk graut og gulrætur. Hún hefur verið að fá rísgraut en í gær prófuðum við hirsi og í morgun var hún alveg viss um að hún vildi þetta sko ekki - rísgrauturinn er svo miklu betri og bragðminni! Þannig að núna í morgun þá fékk og bæði hirsigraut og gulrætur nema það að hún stakk alltaf tungunni út úr sér til að vera viss um að það væru gulrætur í skeiðinni en ekki grautur. Ef það voru gulrætur gleypti hún skeiðina en annars frussaði hún á hana svo allt fór út um allt.

Hér er ein mynd af 6 mánaða skvísunni frá því á afmælisdaginn í gær:

IMG_1364.jpg

Jóhanna Jóhanna

4 svör

  1. best að vera í mömmuholu!

    Sagði Gréta — 06 Apr 2008 @ 2:39

  2. Ég sé hana nú alveg fyrir mér elsku stelpuna.. Knús frá ömmu_Þorgerði.

    Sagði amma-Þorgerður — 07 Apr 2008 @ 5:19

  3. Ákveðin ung dama - á hún nokkuð langt að sækja það? :)

    Sagði amma Birna — 07 Apr 2008 @ 9:16

  4. Það er nú gott að vita hvað maður vill. Voða sæt mynd af Grétu Björgu

    Sagði Bryndís — 07 Apr 2008 @ 4:06

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527