- Herma eftir hljóðum og tvö skrið - 30 Apr 2008
-
Við áttuðum okkur á því í morgun að Gréta Björg er byrjuð að herma örlítið eftir því sem við segjum. Um daginn sagði ég úps og þá sagði litlan ubs. Í morgun bauð ég Palla ristað brauð og hann sagði já takk og þá sagði litlan jada.
Gréta Björg orðin svo fjörmikil að nú hefur skiptidýnunni verið komið fyrir niður á gólfi. Þorum einfaldlega ekki öðru og hefðum eflaust átt að vera löngu búin að þessu. Hún heldur að allt sé til þess gert að tosa sig upp, má þar nefna hárið hennar mömmu, gleraugun, bleian, bogarnir á leikteppinu og margt fleira.
Núna er hún alveg að fara að skríða. Í gær færði hún sig eitt skref á fram en í dag tvo og hefði eflaust farið fleiri ef ég hefði ekki fjarlægt tölvuna (með skype myndavélinni og ömmu og afa á línunni). Þegar hún sá í hvað stefndi þá ákvað mín að hætta að einbeita sér og skriðinu og kasta sér fram að tölvunni. Það eru helst hendurnar sem eru að vefjast fyrir Grétu Björgu í skriðinu. Hún kemur sér upp á hnén eins og ekkert sé og hreyfir fæturna en hendurnar hafa verið fastar þangað til í gær.
-
Eitt svar
Apríl, 2008
- Hafragrautur fyrir fjölskylduna - 29 Apr 2008
-
Þriðja grautartegundin hefur bæst á matseðil Grétu Bjargar. Núna fær öll fjölskyldan sér hafragraut á morgnana. Perur og grænar baunir hafa líka bæst á matseðilinn. Næst á dagskrá er að prófa mango.
Yfir í annað. Misserið er búið hjá mér en að þessu sinni er alveg sérstakt tilefni til að vera kátur. Ég er nefnilega búin með alla skyldukúrsa og nóg af valkúrsum og hef því náð tilsettum einingafjölda.
Afi Jón á afmæli í dag og við óskum honum aftur til hamingju með daginn. Við tókum þátt í afmæliskaffinu á sumardaginn fyrsta í gegnum skype og vorum meira að segja með á hópmynd.
-
4 svör
- Upp af maga - 25 Apr 2008
-
Það er allt á fullri ferð í þroskanum hjá Grétu Björgu núna. Núna finnst mér augljóst af hverju hún sefur svona eins illa og hún hefur gert. Hún hefur greinilega verið að undirbúa að gera margt á sama tíma.
Ég hef nú samt ekki verið að stressa mig neitt mikið á þessu með svefninn enda vissi ég sjálf að þetta myndi ekki vara að eilífu (!) og viti menn síðustu nætur hafa verið mjög góðar og hún aðeins vaknað einu sinni milli miðnættis og 7.
Í gær settist hún upp af maganum. Við héldum að þetta væri bara tilviljun en núna rétt áðan þá lá hún á gólfi að leika sér og svo allt í einu á meðan ég er ekki að horfa er hún sest upp og við það að þetta aftur fyrir sig - hangir með aðra hendina í einu dótinu á leikteppinu og stiður sig í gólfið með hinn. Jæja, þarf að fara hjálpa minni úr ógöngunum sem hún er komin í undir sófa.
-
2 svör
- Samhljóðar - 23 Apr 2008
-
Við höfum verið að bíða eftir að Gréta Björg byrjaði að babla með samhljóðum og núna áðan þá kom fyrsta “dadada…” og svo kom “lalala…” Ég læt fylgja nokkrar myndir. Sú fyrst er tekin áður en lækkað var í rúminu.

-
2 svör
- Hitalaus með hósta og staðið upp - 22 Apr 2008
-
Ungfrúin hefur verið hitalaus síðan á föstudag en er núna með kvef og hósta, hóstinn er þó nánast horfinn. Hún sofnar nokkuð auðveldlega núna ef hún er kuðluð í fangi og poka. Áðan var ég að hafa til sjóða hirsigraut fyrir hana og setti hana í pokann á meðan og hún steinsfonar. Hún fær þá bara graut á eftir og uppháldið sitt, plómur, sem að þessu sinni verður blandað við epli.
Gréta Björg hefur annars smakkað þónokkuð af grænmeti og ávöxtum síðan hún byrjaði að fá rísgraut á Íslandi. Hún hefur nefnilega fengið gulrætur, sætar kartöflur, plómur, sveskjur (sem henni finnst auðvitað jafngóðar og plómurnar!), epli, banana, og avakadó. Svo set ég yfirleitt smá sólblómaolíu ásamt móðurmjólk út á grautinn.
Hún er nokkuð dugleg að borða þó svo að hún megi nú oft ekkert vera að því enda svo margt annað spenndi að sjá og skoða. Hún fær yfirleitt að borða tvisvar á dag, síðbúinn morgunmat og kvöldmat og þa er nú frekar kvöldmaturinn sem hún borðar vel af svo lengi sem hann er ekki of seint. Ég veit ekkert hvort það séu einhver viðmið í magni á þessum aldri enda hlýtur það að vera mjög persónubundið. Ég held samt hún sé frekar neyslugrönn, a.m.k. samanborðið við Lydiu vinkonu okkar.
Gréta Björg getur núna hýft sig upp á lappirnar ef hún er sitjandi í rúminu. Við erum því búin að lækka dýnuna í rimlarúminu enda tókst henni að fara í kollhnís yfir rimlana og í mömmu og pabba rúm. Hún getur samt ekki komið sér úr liggjandi stöðu enn þá.
-
Eitt svar
- Lasin ljúfa - 17 Apr 2008
-
Gréta Björg er lasin. Hún var heldur óróleg og lystarlaus í gær og í gærkvöldi var hún komin með 39 stiga hita, smá uppgang og niðurgang. Anga skinnið. Svo fór hitinn yfir 39 og þá fékk hún tylanol að læknisráði. Klukkan fimm í morgun var hitinn kominn niður í 5 kommur og núna upp í 8 kommur. Hún er miklu hressari en í gær en samt svolítið lítil í sér. Hún fór til dæmis að hágráta þegar pabbi hennar hnerraði. Við eigum bara að fylgjast með hitanum og passa að hún ofþorni ekki. Fengum ýmis ráð hvernig hægt er að vita að börn séu að ofþorna, ég vissi til dæmis ekki að ef að það er smá bunga niður í gatið á höfuðkúpunni þá er barnið að ofþorna. Ljúfan svaf því upp í nótt og fékk að nota brjóstið fyrir snuð svo að hún svaf ágætlega.
-
4 svör
- Ferðalög til Íslands og Lundar - 14 Apr 2008
-
Við vorum að bóka ferð til Íslands í sumar. Palli er að fara á ráðstefnu á Íslandi svo það var nú ekki hægt annað en að við Gréta Björg fengjum að fljóta með. Við leggjum í hann þann 6. júlí. Við Gréta Björg ætlum alla leið til Lundar að heimsækja Grétu frænku og Gumma á meðan Palli er á ráðstefnunni. Á leiðinni frá Svíþjóð stoppum við mæðgurnar á Íslandi í viku, þ.e. frá 15. til 22. júlí. Við ætlum að eyða mestum af þeim tíma fyrir vestan, í Hlíð, á Hóli og á Börmum.
-
6 svör
- Ákveðin ung dama - 06 Apr 2008
-
Gréta Björg veit svo sannarlega hvað hún vill.
Eitt dæmi er hvernig hún vill sofna á kvöldin. Hún vill sofna í mömmuhol með mömmu við hliðina á sér og súpa brjóstið um leið. Í gærkvöldi bauð ég henni að súpa frammi í stofu en ekki vildi hún það og þar sem var komin háttatíma ákvað ég að prófa að leggja hana bara inn og ekki gekk það svo ég prófaði að vagga henni og ekki gekk það svo lagði ég hana í rúmið okkar og mín varð svona líka sæl, brosti út að eyrum, opnaði svo munnin og beið eftir brjóstinu. Eftir það sofnaði hún á tæpri mínútu.
Annað dæmi var í morgun þegar hún fékk graut og gulrætur. Hún hefur verið að fá rísgraut en í gær prófuðum við hirsi og í morgun var hún alveg viss um að hún vildi þetta sko ekki - rísgrauturinn er svo miklu betri og bragðminni! Þannig að núna í morgun þá fékk og bæði hirsigraut og gulrætur nema það að hún stakk alltaf tungunni út úr sér til að vera viss um að það væru gulrætur í skeiðinni en ekki grautur. Ef það voru gulrætur gleypti hún skeiðina en annars frussaði hún á hana svo allt fór út um allt.
Hér er ein mynd af 6 mánaða skvísunni frá því á afmælisdaginn í gær:

-
4 svör
- 6 mánaða skoðun - 04 Apr 2008
-
Gréta Björg verður 6 mánaða á morgun og af því tilefni heimsóttum við barnalækninn í dag. Enn og aftur sagði barnalæknirinn okkur að litla stelpan okkar væri fullkomin. Hún er orðin rétt rúm 6,8 kg og 68,5 sm. Þannig að hún heldur áfram að vera “há og grönn” eins og læknirinn segir alltaf en hún er 30% í þyngd en 95% í lengd miðað við önnur Bandarísk börn. Hún stóð sig eins og hetja þegar hún fékk sprauturnar og var fljót að jafna sig.
-
3 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

