Fyrsta fyrst - 24 Mar 2008

Þá erum við komin aftur heim til Pittsburgh. Fyrsta ferðalag Grétu Bjargar gekk rosalega vel. Hún svaf alla leiðina til Íslands en vakti á leiðinni aftur til Bandaríkjanna en var samt ósköp góð. Tíminn heima var auðvitað alveg æðislegur.

Á Íslandi fór Gréta Björg í sund, fékk fyrsta grautinn og fyrstu gulræturnar. Það var rosa gaman í sundi og grauturinn var líka ofsa góður. Gulræturnar þóttu minni nú ekkert voðalega góðar.

Á Íslandi var Gréta Björg skírð, hún hitti fleira fólk á þessum tveimur vikum en hún hafði hitt fram að því. Hún fékk tönn númer tvö - sú fyrsta kom rétt fyrir fimm mánaða afmælið, þann annan mars.

Gréta Björg situr sjálf núna en það er samt enn nauðsynlegt að vera nálægt þar sem jafnvægið bregst henni stundum. Hún er líka byrjuð að undirbúa að fara að skríða og er farin að reyna að setja hnén undir sig. Það er nú samt líklega þónokkrar vikur í að henni takist það.

Núna verður brjálað að gera hjá mér enda misserið að klárast og ný gögn komin til að analýsa og fleira og fleira. Annars erum við aðeins byrjuð að pæla í framhaldinu, jafnvel þó við útskrifum líklegast ekki fyrr en næsta vor…

Jóhanna Jóhanna

4 svör

  1. Elusu Gréta Björg, Jóhann og Palli.
    Þökkum fyrir frábæran tíma sem leið bara allt af fljótt. Koss og knús frá öllum í Holtsbúðinni.

    Sagði amma-Þorgerður — 24 Mar 2008 @ 8:46

  2. Takk fyrir síðast! Það var frábært að fá loksins að hitta litlu ungfrúna og fá það staðfest sem mann hafði grunað fram að þessu - að hún er afbragð annarra barna! :) Gott að heyra að ferðin lukkaðist vel og ferðalögin gengu áfallalaust!

    Sagði Arndís — 24 Mar 2008 @ 9:22

  3. Frábær tími að hafa ykkur hérna heima og fá að knúsa Grétu Björgu reglulega :) kveðja amma Birna

    Sagði amma Birna — 24 Mar 2008 @ 11:05

  4. Gott að ferðin heim gekk vel;) það var æðislega gaman að fá loksins að hitta Grétu Björgu og fá að knúsa hana aðeins :D og auðvitað ykkur líka

    Sagði Helga Dóra — 24 Mar 2008 @ 4:42

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527