Mars, 2008

Á róló! - 29 Mar 2008

Gréta Björg prufaði smábarnarólur í góða veðrinu í dag:

IMG_1326.jpg

IMG_1334.jpg


3 svör
Fyrsta fyrst - 24 Mar 2008

Þá erum við komin aftur heim til Pittsburgh. Fyrsta ferðalag Grétu Bjargar gekk rosalega vel. Hún svaf alla leiðina til Íslands en vakti á leiðinni aftur til Bandaríkjanna en var samt ósköp góð. Tíminn heima var auðvitað alveg æðislegur.

Á Íslandi fór Gréta Björg í sund, fékk fyrsta grautinn og fyrstu gulræturnar. Það var rosa gaman í sundi og grauturinn var líka ofsa góður. Gulræturnar þóttu minni nú ekkert voðalega góðar.

Á Íslandi var Gréta Björg skírð, hún hitti fleira fólk á þessum tveimur vikum en hún hafði hitt fram að því. Hún fékk tönn númer tvö - sú fyrsta kom rétt fyrir fimm mánaða afmælið, þann annan mars.

Gréta Björg situr sjálf núna en það er samt enn nauðsynlegt að vera nálægt þar sem jafnvægið bregst henni stundum. Hún er líka byrjuð að undirbúa að fara að skríða og er farin að reyna að setja hnén undir sig. Það er nú samt líklega þónokkrar vikur í að henni takist það.

Núna verður brjálað að gera hjá mér enda misserið að klárast og ný gögn komin til að analýsa og fleira og fleira. Annars erum við aðeins byrjuð að pæla í framhaldinu, jafnvel þó við útskrifum líklegast ekki fyrr en næsta vor…


4 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527