4 mánaða - 05 Feb 2008

Gréta Björg er fjögurra mánaða í dag og af því tilefni fórum við í hefðbundna læknisskoðun. Gréta Björg er orðin 6,2 kg og 66 sm og er algörlega á sínum vaxtakúrfum. Hún stóð sig vel og brosti til læknisins. Hún var hins vega ekki sátt við sprauturnar en jafnaði sig samt fyrr en síðast. Læknir sagði okkur líka það sem við vissum alveg að litla stelpan okkar væri alveg fullkomin :-)

Annars hefur ýmislegt gerst síðan síðast var skrifað. Gréta Björg hefur velt sér í báðar áttir og hefur tekið upp hluti án þess að grípa í þá heldur halda með báðum höndum. Hún vill helst sitja núna þegar hún leikur sér en er nú samt ekki farin að geta það ein og óstudd.

Palli fór til Seattle og San Francisco og amma Þorgerður var hjá okkur stelpunum. Gréta Björg sættist við pelann og snuðið. Núna fær hún pumpaða brjóstamjólk 1-2 sinnum í viku á meðan ég fer á fund og í tíma. Þetta var skrítið með snuðið en ég var alveg hætt að bjóða henni það en eftir tveggja mánaða pásu stingur amma því upp í hana og mín bara hin sáttasta. Hún er samt engin snuð kerling og vill það yfirleitt bara í vagninum.

Jóhanna Jóhanna

3 svör

  1. skrítid ad tid vissud ad hun vaeri fullkomin :)

    Sagði Greta — 06 Feb 2008 @ 4:36

  2. Hún er svo sannarlega fullkomin.
    Hlakka mikið til að getað knúsað ykkur öll aftur. Amma Þorgerður..

    Sagði amma-Þorgerður — 06 Feb 2008 @ 6:28

  3. Kemur ekkert á óvart að læknirinn skuli segja að hún sé fullkomin :)
    Hlakka til að sjá ykkur öll heima.

    Sagði amma Birna — 06 Feb 2008 @ 2:20

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527