Febrúar, 2008

Kjútípæ! - 27 Feb 2008

Af Grétu Björgu er helst að frétta að hún er byrjuð að geta setið stutta stund í einu óstudd. Hún er byrjuð að fatta að mamma getur farið frá henni og fylgist gjarnan grannt með henni. Hún er nánast orðin alveg ljóshærð - verður algjör glókollur eins og báðir foreldrarnir voru. Smá sería af litlu ljúfunni:

IMG_2754.jpg

Hissa!

IMG_2755.jpg

Gaman

IMG_2756.jpg

Rosa gaman

IMG_2757.jpg

Spjalla


11 svör
2 vikur og opið hús - 20 Feb 2008

Við erum farin að hlakka mikið til heimferðarinnar til Íslands enda einungis tvær vikur þar til við leggjum í hann. Tilhugsunin er nú samt líka stressandi því að ég hef alveg nóg að gera. Við erum enn að bíða eftir gögnunum og ég er orðin svolítið stressuð að þau birtist daginn sem við leggjum af stað heim.

Í fyrradag fórum við á opið hús í CMU leikskólanum og líst alveg rosalega vel á. Hann er greinilega á einhverjum öðrum gæðaskala en maður á að venjast. Við fáum að vita í lok mánaðarins hvar við stöndum á biðlistanum fyrir inngöngu í ágúst. Við vonum auðvitað að Gréta Björg komist inn og þá sem “young toddler” en ekki “infant”. Fyrir ungabörn er bara boðið upp á dagvist alla daga en ekki tvo eða þrjá daga í viku og það kostar $1500 á mánuði og við höfum ekki efni á því en það væri flott ef hún kæmist tvo daga sem lítill krakki.


Eitt svar
Fyrsta strætóferðin - 08 Feb 2008

Við Gréta Björg ákváðum að taka strætó í jógað í morgun. Yfirleitt höfum við labbað en í gær fengum við nýjan burðarpoka . Pokinn er bara sá allra besti og þægilegasti sem hugsast getur svo að það var alveg kjörið að nota hann. Ég veit að ég er klikkuð, við eigum núna fjórar gerðir af pokum - vildi bara að ég hefði vitað af þessum fyrr.

Palli hefur verið að vinna á fullu í pappír sem þeir ætla að senda á ráðstefnu sem verður á Íslandi í sumar. Vonum að pappírinn komist inn.

Jæja, mér heyrist daman vera að rumska…


Eitt svar
4 mánaða - 05 Feb 2008

Gréta Björg er fjögurra mánaða í dag og af því tilefni fórum við í hefðbundna læknisskoðun. Gréta Björg er orðin 6,2 kg og 66 sm og er algörlega á sínum vaxtakúrfum. Hún stóð sig vel og brosti til læknisins. Hún var hins vega ekki sátt við sprauturnar en jafnaði sig samt fyrr en síðast. Læknir sagði okkur líka það sem við vissum alveg að litla stelpan okkar væri alveg fullkomin :-)

Annars hefur ýmislegt gerst síðan síðast var skrifað. Gréta Björg hefur velt sér í báðar áttir og hefur tekið upp hluti án þess að grípa í þá heldur halda með báðum höndum. Hún vill helst sitja núna þegar hún leikur sér en er nú samt ekki farin að geta það ein og óstudd.

Palli fór til Seattle og San Francisco og amma Þorgerður var hjá okkur stelpunum. Gréta Björg sættist við pelann og snuðið. Núna fær hún pumpaða brjóstamjólk 1-2 sinnum í viku á meðan ég fer á fund og í tíma. Þetta var skrítið með snuðið en ég var alveg hætt að bjóða henni það en eftir tveggja mánaða pásu stingur amma því upp í hana og mín bara hin sáttasta. Hún er samt engin snuð kerling og vill það yfirleitt bara í vagninum.


3 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527