Fyrsta kvefið - 06 Jan 2008

Gréta Björg varð þriggja mánaða í gær á 28 ára afmælisdegi pabba síns. Hún hélt upp á afmælið kvefuð í fyrsta sinn. Hún virtist nú samt ekki neitt veik. Hún var ósköp ljúf og góð en var ekki í miklu stuði til að leika sér á leikteppinu. Ég sleppti því að fara í ´mommy and me´ jógað á föstudeginum.

Það styttist í að amma Þorgerður komi til okkar og við Gréta Björg hlökkum mikið til. Óðinn bróðir Palla kemur líka til okkar í heimsókn á föstudaginn en hann er skiptinemi í Erie sem er 2 klst norður af Pittsburgh! Palli heldur svo til Microsoft Research á mánudaginn eftir viku og síðan til San Francisco á ráðstefnu.

Jóhanna Jóhanna

Eitt svar

  1. Vonandi batnar Grétu Björgu kvefið fljótt. kærar kveðjur

    Sagði amma Birna — 06 Jan 2008 @ 4:00

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527