- Heimferð :-) - 07 Jan 2008
-
Loksins, loksins! Við erum búin að bóka ferð heim til Íslands frá 5. mars til 23. mars. Getum því miður ekki verið lengur af því að ég er í kúrsum og kennarinn í einum trompaðist þegar ég sagðist munu vera í burtu hluta úr mars og sagðist bara geta “leyft” mér að missa einn tíma - ekki það að það komi honum eitthvað við hvort ég læri með að mæta í tíma eða lesa. Ég tæki sko ekki þennan kúrs nema af því hann er skylda.
Það var annars 19°C í dag - þvílíkt rugl! Gréta Björg er líka öll að verða betri af kvefinu.
-
6 svör
Janúar, 2008
- Fyrsta kvefið - 06 Jan 2008
-
Gréta Björg varð þriggja mánaða í gær á 28 ára afmælisdegi pabba síns. Hún hélt upp á afmælið kvefuð í fyrsta sinn. Hún virtist nú samt ekki neitt veik. Hún var ósköp ljúf og góð en var ekki í miklu stuði til að leika sér á leikteppinu. Ég sleppti því að fara í ´mommy and me´ jógað á föstudeginum.
Það styttist í að amma Þorgerður komi til okkar og við Gréta Björg hlökkum mikið til. Óðinn bróðir Palla kemur líka til okkar í heimsókn á föstudaginn en hann er skiptinemi í Erie sem er 2 klst norður af Pittsburgh! Palli heldur svo til Microsoft Research á mánudaginn eftir viku og síðan til San Francisco á ráðstefnu.
-
Eitt svar
- Velta - 02 Jan 2008
-
Framfarirnar halda áfram hjá Grétu Björgu en rétt í þessu velti hún sér af maganum yfir á bakið. Hún var mjög hissa þegar hún lá allt í einu á bakinu enda gerist þetta yfirleitt óvart fyrst.
Ég læt eina sæta mynd af okkur mæðgunum frá því í gærkvöldi fylgja með. Við reynum svo að ná Grétu Björgu að velta sér á myndband.

-
11 svör
- 2008! - 01 Jan 2008
-
Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur!
Við horfuðum á áramótin í sjónvarpinu og Gréta Björg svaf þau af sér! Ég held við nennum ekki að fagna áramótunum á öðrum tímabeltum í Bandaríkjunum eins og sumir gera. Það er annars óhætt að segja að 2007 hafi verið ánægjulega viðburðaríkt hjá okkur Palla.
Og, til hamingju með 24. afmælið í gær elsku Gréta systir frá okkur öllum. Hlökkum til að hitta ykkur Gumma í mars. Knús :-)
-
3 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
