- Mini-armbeygjur og jólin - 29 Des 2007
-
Gréta Björg hefur verið að vinna í mini-armbeygjunum undanfarið og er að verða búin að mastera þær. Áður en henni tókst að lyfta hausnum á maganum fannst henni þvílík kvöl og pína að vera látin liggja á maganum. Hún er farin að ná góðum tökum á höndum og teygir sig markvisst eftir dótinu sem hangir á leikteppinu og danglar í það. Hún er farin að fatta hvernig hún fær fiðrildið til að tala við sig, þá dugar nefnilega að slá kröftuglega í það (þá blikka ljós í vængjunum og músík er spiluð). Hún nagar líka á sér hnúana. Gréta Björg er samt alveg greinilega rétthend - hún hefur mun betri stjórn á hægri hendinni heldur en þeirri vinstri.

Jólin voru annars mjög hugguleg hjá okkur þriggja manna fjölskyldunni. Gréta Björg svaf á meðan á matnum stóð en var svo heldur óróleg það sem eftir lifði kvöldsins. Við þökkum innilega fyrir allar fínu gjafirnar og jólakortin.
-
Jóhanna
3 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

takk fyrir jólakortin sömuleiðis..
Sagði Emma — 30 Des 2007 @ 5:56
Tall sömuleiðis elskurnar fyrir gjafirnar. Púslið sér til þess að “julen den varer helt til paske” ;)
kveðjur amma Birna, Jón, Bára og Gunnar (sem eru veðurteppt í bænum).
Sagði amma Birna — 30 Des 2007 @ 8:57
Takk fyrir okkur elsku lita fjölskylda.
amma og afi í Holtsbúð.
Sagði amma-Þorgerður — 30 Des 2007 @ 2:43