- Heldur haus og jólakortamynd - 11 Des 2007
-
Ég held það sé orðið óhætt að segja að Gréta Björg haldi haus. Hún missir hann ekki niður lengur en stundum hnígur hann hægt niður þegar hún er orðin þreytt. Hún er farin að spjalla heilmikið en alltaf þegar við ætlum að reyna að ná spjallinu á myndband þá hættir hún að tala og byrjar að stara á myndavélina. Það verður því að bíða enn um sinn að leyfa alþjóða að heyra í henni.
Við erum líka búin að taka jólakortamyndina en birtum ekki myndir úr þeirri seríu fyrr en á jólunum :-)
Annars fékk ég vægt sjokk um daginn þegar ég áttaði mig á því hvað væri stutt til jóla. Við erum ekki búin að kaupa jólatréð og held við sleppum því bara í ár og skreytum bara með greni. Það er nefnilega hægara sagt en gert að finna lítið tré og við höfum voða lítið pláss.
Það verður nú eitthvert vesen núna að komast heim þegar Flugleiðir eru hætt að fljúga til Baltimore. Við komum nú samt heim í vor og erum þessa stundina að leita að heppilegu flugi þannig að við náum að fljúga í einni lotu án þess að þurfa að gista á leiðinni. Það er nú svolítið skondið að þegar flugið hefst frá Toronto þá verður styst fyrir okkur að keyra þangað en á hina staðina sem flogið er á innan Bandaríkjanna. Er samt ekki viss um að það muni taka styttri tíma því að þá mun maður þurfa að fara í gegnum vegabréfaeftirlit í Kanada líka.
-
Jóhanna
4 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

verdur ta enn erfidar ad koma i heimsokn til ykkar…
Sagði Greta — 13 Des 2007 @ 5:59
Já, a.m.k. frá Íslandi með Flugleiðum en örugglega ekkert mál að koma frá Evrópu með Contiental, til dæmis.
Sagði Jóhanna — 13 Des 2007 @ 12:42
Skil ekkert í þeim að hætta að fljúga á Baltimore! Eins og það hentar okkur vel :)
Knús til ykkar allra.
Sagði amma Birna — 15 Des 2007 @ 6:52
Alveg sammála ykkur.
Knús og koss,
amma Þorgerður..
Sagði amma-Þorgerður — 15 Des 2007 @ 5:11