Tveggja mánaða skoðun - 07 Des 2007

Gréta Björg varð tveggja mánaða síðasta miðvikudag og fórum við því í skoðun til læknisins í gær. Gréta Björg fylgir sinni kúrfu algjörlega og vó núna 5188 grömm, var 60,5 sm á lengd og höfuðmálið var 39,5 sm. Ekki nóg með að vera vegin og mæld þá fékk hún líka fyrstu bólusetninguna og þvílík og önnur eins öskur hef ég ekki heyrt frá henni. Hún öskraði bókstaflega af öllum lífs og sálar kröftum. Eini takmarkandi þátturinn fyrir öskur-styrknum var stærð lungnanna. Hún var nú svolítið lítil í sér í gær eftir þetta en klukkan 4 í nótt var hún orðin sátt - í stað þess að vakna grátandi brosti hún og hjalaði og var sko alveg til að spjalla.

Alveg finnst mér ótrúlegt hvað tíminn flýgur alltaf áfram. Misserið er að verða búið en ég er byrjuð að mæta á fund með leiðbeinandanum mínum aftur og fer einu sinni í viku.

Mamma er búin að bóka ferð til okkar í janúar og kemur þann 11 og verður í tvær heilar vikur. Mikið hlakka ég til. Á meðan fer Palli til Microsoft Research að halda fyrirlestur og fer svo á ráðstefnu þar sem hann verður líka með fyrirlestur.

Jóhanna Jóhanna

2 svör

  1. Hva, léstu ekki Palla fara með hana! :)
    Hei Microsoft research…ætli ég gæti notað það í upplýsingatæknina hérna á Hólmavík? :)

    Sagði Gunnarinn — 07 Des 2007 @ 7:24

  2. æi litla snúllan, skil hana vel, ekkert gaman að fara í sprautu :)

    Sagði Gréta — 08 Des 2007 @ 4:57

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527