Desember, 2007

Mini-armbeygjur og jólin - 29 Des 2007

Gréta Björg hefur verið að vinna í mini-armbeygjunum undanfarið og er að verða búin að mastera þær. Áður en henni tókst að lyfta hausnum á maganum fannst henni þvílík kvöl og pína að vera látin liggja á maganum. Hún er farin að ná góðum tökum á höndum og teygir sig markvisst eftir dótinu sem hangir á leikteppinu og danglar í það. Hún er farin að fatta hvernig hún fær fiðrildið til að tala við sig, þá dugar nefnilega að slá kröftuglega í það (þá blikka ljós í vængjunum og músík er spiluð). Hún nagar líka á sér hnúana. Gréta Björg er samt alveg greinilega rétthend - hún hefur mun betri stjórn á hægri hendinni heldur en þeirri vinstri.

mini_pushups.jpg

Jólin voru annars mjög hugguleg hjá okkur þriggja manna fjölskyldunni. Gréta Björg svaf á meðan á matnum stóð en var svo heldur óróleg það sem eftir lifði kvöldsins. Við þökkum innilega fyrir allar fínu gjafirnar og jólakortin.


3 svör
Jólatréð skreytt á Þorlák - 23 Des 2007

IMG_0884.jpg

Við stelpurnar við mini-jólatréð okkar

Gleðileg jól


4 svör
Svaf af sér Lydiu - 20 Des 2007

Gréta Björg og Lydia sváfu af sér hvor aðra þegar mömmurnar hittust í hádeginu í dag. Gréta Björg svaf sem sagt 40 mínútna göngutúr upp í Squirrel Hill, einnar og hálfar klukkustundar hádegismat og göngutúr til baka. Þetta er mjög ólíkt henni yfirleitt sefur hún lítið og aðeins stutta dúra á daginn. Þetta er svo sem ekkert skrítið ef tekið er mið af því að hún hefur ekki sofið vel á nóttuna undanfarna daga. Á morgun ætlum við aftur að hittast í ‘mommy-and-me’ jóga.


2 svör
Jóla-skóla stress - 18 Des 2007

Rétt tæp vika til jóla og hér hefur ekkert verið gert, ekki einu sinni jólaísinn. Eina jólaskrautið sem komið er fram er aðventukransinn. Við Palli erum ekki búin að kaupa jólagjafirnar fyrir hvort annað og ekki heldur fyrir Grétu Björgu. Og enn á eftir að póstleggja nokkur jólakort, um 40 eru þegar farin af stað og um 5 bíða eftir frímerki.

Það er svo nóg að gera hjá mér í skólanum akkúrat núna en ég er búin að vera að skrifa smá mini-pappír og á bara rétt eftir að snurfusa áður en ég sendi hann til meðhöfundanna. Það vonandi í síðasta skipti svo að ég geti sent pappírinn í tímaritið sem fyrst. En við ætlum að reyna við Nature Genetics. Sjáum til hverning það fer!

Síðan var ég að fá beiðni um að vera yfirlesari fyrir pappír og ég get alls ekki sagt nei af því að yfir-yfirmaðurinn minn (sá sem borgar mér laun) er ritstjóri þessa tímarits. Þetta verður þá í fyrsta skipti sem ég les yfir grein án handleiðslu leiðbeinandans míns.

Á fimmtudaginn ætlum við Gréta Björg að hitta Lydiu og mömmu hennar, sem var með mér í meðgögnuleikfiminni. Lydia fæddist mánuði á eftir Grétu Björgu. Það verður gaman. Til gamans má nefna að mamma Lydiu hefur komið til Íslands.

Af Grétu Björgu er allt gott að frétta. Hún er stundum dálítil mömmustelpa og er sko alveg farin að fatta hverning hún kemst úr pabbafangi í mömmufang. Þá þykist hún bara vera svöng. Núna er hún á leikteppinu og sveiflar höndunum markvisst í dótið.

Það er kalt hjá okkur núna og innifalda húshitunin er ekki til staðar þannig að Gréta Björg er í ull frá toppi til táar. Palli ætlar niður að kvarta. Þetta gengur ekki, í nótt notuðum við til dæmis rafmagnshitarana en þeir þurrka loftið svo að Gréta Björg og þar af leiðandi við sváfum mjög illa í nótt.


3 svör
Heldur haus og jólakortamynd - 11 Des 2007

Ég held það sé orðið óhætt að segja að Gréta Björg haldi haus. Hún missir hann ekki niður lengur en stundum hnígur hann hægt niður þegar hún er orðin þreytt. Hún er farin að spjalla heilmikið en alltaf þegar við ætlum að reyna að ná spjallinu á myndband þá hættir hún að tala og byrjar að stara á myndavélina. Það verður því að bíða enn um sinn að leyfa alþjóða að heyra í henni.

Við erum líka búin að taka jólakortamyndina en birtum ekki myndir úr þeirri seríu fyrr en á jólunum :-)

Annars fékk ég vægt sjokk um daginn þegar ég áttaði mig á því hvað væri stutt til jóla. Við erum ekki búin að kaupa jólatréð og held við sleppum því bara í ár og skreytum bara með greni. Það er nefnilega hægara sagt en gert að finna lítið tré og við höfum voða lítið pláss.

Það verður nú eitthvert vesen núna að komast heim þegar Flugleiðir eru hætt að fljúga til Baltimore. Við komum nú samt heim í vor og erum þessa stundina að leita að heppilegu flugi þannig að við náum að fljúga í einni lotu án þess að þurfa að gista á leiðinni. Það er nú svolítið skondið að þegar flugið hefst frá Toronto þá verður styst fyrir okkur að keyra þangað en á hina staðina sem flogið er á innan Bandaríkjanna. Er samt ekki viss um að það muni taka styttri tíma því að þá mun maður þurfa að fara í gegnum vegabréfaeftirlit í Kanada líka.


4 svör
Tveggja mánaða skoðun - 07 Des 2007

Gréta Björg varð tveggja mánaða síðasta miðvikudag og fórum við því í skoðun til læknisins í gær. Gréta Björg fylgir sinni kúrfu algjörlega og vó núna 5188 grömm, var 60,5 sm á lengd og höfuðmálið var 39,5 sm. Ekki nóg með að vera vegin og mæld þá fékk hún líka fyrstu bólusetninguna og þvílík og önnur eins öskur hef ég ekki heyrt frá henni. Hún öskraði bókstaflega af öllum lífs og sálar kröftum. Eini takmarkandi þátturinn fyrir öskur-styrknum var stærð lungnanna. Hún var nú svolítið lítil í sér í gær eftir þetta en klukkan 4 í nótt var hún orðin sátt - í stað þess að vakna grátandi brosti hún og hjalaði og var sko alveg til að spjalla.

Alveg finnst mér ótrúlegt hvað tíminn flýgur alltaf áfram. Misserið er að verða búið en ég er byrjuð að mæta á fund með leiðbeinandanum mínum aftur og fer einu sinni í viku.

Mamma er búin að bóka ferð til okkar í janúar og kemur þann 11 og verður í tvær heilar vikur. Mikið hlakka ég til. Á meðan fer Palli til Microsoft Research að halda fyrirlestur og fer svo á ráðstefnu þar sem hann verður líka með fyrirlestur.


2 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527