Aftur orðin þrjú ein - 30 Nóv 2007

Birna og Jón fóru síðasta mánudag og við erum aftur orðin þrjú ein. Það var ofsalega gaman og notalegt að hafa þau. Nóvember hefur sko verið dekur mánuður hjá okkur. Gréta Björg heillaði þau auðvitað upp úr skónum.

Gréta Björg dafnar vel og kann ýmislegt núna. Hún skoðar á sér hendurnar og sjálfa sig í speglinum á leikteppinu. Hún getur stundum róað sig sjálf þegar hún sér skemmtilegt dót. Hún er farin að setja hendurnar undir sig og lyfta sér upp þegar hún er á maganum. Hún stígur í hælana og lyftir rassinum upp þegar hún liggur á bakinu og stígur í tærnar og lyftir bossanum þegar hún liggur á magnum. Hún er farin að spjalla og brosa á fullu. Og margt margt fleira.

Jóhanna Jóhanna

3 svör

  1. Hún er æðisleg.. Hlakka mikið til að koma til ykkar 11 jan. Knús og koss frá ömmu Þorgerði..

    Sagði amma-Þorgerður — 01 Des 2007 @ 6:02

  2. Hún er algjör dúlla, gaman að skoða nýju myndirnar. Kveðja frá ömmusystur

    Sagði Bryndís — 01 Des 2007 @ 9:07

  3. Það er ekki ofsagt að´Gréta Björg hafi heillað okkur - enda er hún frábær!
    Takk fyrir okkur - við nutum þess að vera hjá ykkur í heimsókn
    amma Birna og afi Jón

    Sagði amma Birna — 03 Des 2007 @ 6:20

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527