Barnalæknir og bros til mömmu - 07 Nóv 2007

Við hittum barnalækninn í gær í eins mánaða skoðun. Gréta Björg var vegin og mæld 57 sm á lengd, 4365 grömm og með höfuðmál 37 sm. Hún hefur því lengst um 5 sm, þyngst um 750 grömm og höfuðmálið hefur aukist um 2 sm og fylgir hún sinni kúrfu vel. Það er alger draumur að vera komin með vagninn góða og geta bara rölt til læknisins í stað þess að fara á bíl. Amma kom með í skoðunina og tók fullt af myndum. Hér fylgir ein þegar læknirinn hlustar eftir hjartslættinum. Greyið litla var orðin svöng svo henni fannst þetta ekkert skemmtilegt.

IMG_0706.jpg

Næsta heimsókn til læknisins er eftir mánuð og þá fær stúlkan líka bólusetingarsprautur. Ég hlakka ekki til þess.

Í gær fór Gréta Björg með gestina upp á Mt. Washington að skoða útsýnið yfir borgina. Gréta Björg var að vísu inni í bíl með ömmu með við hin fórum út. Það var nú heldur vindasamt og kalt þarna uppi þannig að við stoppuðum stutt.

Í morgun brosti Gréta Björg svo til mömmu sinnar og í þetta sinn er ég viss um að þetta hafi verið meðvitað bros. Henni er líka farið að finnast gaman að horfa á andlit og tekur þau meira að segja stundum fram yfir að horfa á ljósið út um gluggann. Ef maður færir höfuðið hægt þegar hún horfir á mann fylgir hún manni eftir með augunum.

Í fyrradag kom svo vegabréfið hennar í pósti svo nú eru henni allir vegir opnir! Miðað við sögurnar um að það taki allt að 6 mánuði að fá vegabréf þá borgaði sig greinilega að borga aukalega fyrir flýtimeðferð enda tók þetta rétt rúma viku.

Jóhanna Jóhanna

3 svör

  1. jii Gréta Björg er ekki ennþá búin að ná fæðingarþyngdinni hennar Kolku :D
    Alltaf svo gaman að fylgjst með ykkur..
    kv. frá Providence

    Sagði Emma — 07 Nóv 2007 @ 10:59

  2. Til hamingju með þetta allt saman og hvað Gréta Björg dafnar vel. Við hérna teljum dagana :)

    Sagði amma Birna — 07 Nóv 2007 @ 2:02

  3. Blessuð vertu ég fór með Báru Örk í allar þessar skoðanir og sprautur. Henni fannst þetta ekkert mál. Ég þurfti alltaf að líta undan. Sendu bara Palla með hana þú færð þér kaffi á meðan og slappar af! ;)

    Sagði Gunnar — 08 Nóv 2007 @ 8:40

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527