Nóvember, 2007

Aftur orðin þrjú ein - 30 Nóv 2007

Birna og Jón fóru síðasta mánudag og við erum aftur orðin þrjú ein. Það var ofsalega gaman og notalegt að hafa þau. Nóvember hefur sko verið dekur mánuður hjá okkur. Gréta Björg heillaði þau auðvitað upp úr skónum.

Gréta Björg dafnar vel og kann ýmislegt núna. Hún skoðar á sér hendurnar og sjálfa sig í speglinum á leikteppinu. Hún getur stundum róað sig sjálf þegar hún sér skemmtilegt dót. Hún er farin að setja hendurnar undir sig og lyfta sér upp þegar hún er á maganum. Hún stígur í hælana og lyftir rassinum upp þegar hún liggur á bakinu og stígur í tærnar og lyftir bossanum þegar hún liggur á magnum. Hún er farin að spjalla og brosa á fullu. Og margt margt fleira.


3 svör
Þrjú í kotinu - 10 Nóv 2007

Þá eru mamma, pabbi, Gréta og Gummi farin heim til Íslands og Svíþjóðar og við orðin þrjú eftir í kotinu. Það var æðislegt að hafa þau og erfitt að kveðja en við erum svo heppin að eiga von fleiri gestum en Birna og Jón koma á fimmtudaginn.

Í gær fórum við til Fallingwater og má segja að það hafi verið fyrsta ferðalag Grétu Bjargar. Hér fylgir ein mynd af öllum hópnum. Gréta Björg sefur vært í nýja fína Babyhawk pokanum framan á mömmu sinni.

IMG_1739.jpg


2 svör
Barnalæknir og bros til mömmu - 07 Nóv 2007

Við hittum barnalækninn í gær í eins mánaða skoðun. Gréta Björg var vegin og mæld 57 sm á lengd, 4365 grömm og með höfuðmál 37 sm. Hún hefur því lengst um 5 sm, þyngst um 750 grömm og höfuðmálið hefur aukist um 2 sm og fylgir hún sinni kúrfu vel. Það er alger draumur að vera komin með vagninn góða og geta bara rölt til læknisins í stað þess að fara á bíl. Amma kom með í skoðunina og tók fullt af myndum. Hér fylgir ein þegar læknirinn hlustar eftir hjartslættinum. Greyið litla var orðin svöng svo henni fannst þetta ekkert skemmtilegt.

IMG_0706.jpg

Næsta heimsókn til læknisins er eftir mánuð og þá fær stúlkan líka bólusetingarsprautur. Ég hlakka ekki til þess.

Í gær fór Gréta Björg með gestina upp á Mt. Washington að skoða útsýnið yfir borgina. Gréta Björg var að vísu inni í bíl með ömmu með við hin fórum út. Það var nú heldur vindasamt og kalt þarna uppi þannig að við stoppuðum stutt.

Í morgun brosti Gréta Björg svo til mömmu sinnar og í þetta sinn er ég viss um að þetta hafi verið meðvitað bros. Henni er líka farið að finnast gaman að horfa á andlit og tekur þau meira að segja stundum fram yfir að horfa á ljósið út um gluggann. Ef maður færir höfuðið hægt þegar hún horfir á mann fylgir hún manni eftir með augunum.

Í fyrradag kom svo vegabréfið hennar í pósti svo nú eru henni allir vegir opnir! Miðað við sögurnar um að það taki allt að 6 mánuði að fá vegabréf þá borgaði sig greinilega að borga aukalega fyrir flýtimeðferð enda tók þetta rétt rúma viku.


3 svör
Nýja drossían frá Svíþjóð - 05 Nóv 2007
IMG_1627.jpg
Gréta og Gummi
IMG_1633.jpg
Mamman
IMG_1650.jpg
Pabbinn

3 svör
Skólar skoðaðir - 03 Nóv 2007

Við fórum í göngtúr á Pitt og CMU kampusana í dag. Við fórum öll upp í Cathedral of learning og fengum okkur Crepes á Craig St. Gréta Björg gerði því margt í fyrsta sinn í dag. Læt fylgja nokkrar myndir frá deginum.

IMG_0689.jpg

Horfa upp eftir Cathedral of learning

IMG_0691.jpg

Súlurnar í Mellon Institute

IMG_1619.jpg

CMU kampusinn séð frá toppi Cathedral of learning

IMG_1629.jpg

Á CMU kampus með Cathedral of learning (partur af Pitt) í baksýn


8 svör
Hrekkjavaka og gestir - 01 Nóv 2007

Hrekkjavakan var í gær og fórum við í smá göngutúr um hverfið og fylgdumst með krökkunum og skoðuðum skreytt hús - ótrúlega mikið af flottum skreytingum en Bandaríkjamenn eyða víst meiri pening í hrekkjavökuskreytingar en jólaskreytingar.

Núna eru gestirnir okkar á leiðinni til Keflavíkur. Gréta og Gummi koma frá Lundi og hitta mömmu og pabba í Leifsstöð og síðan halda þau saman til okkar. Mikið hlökkum við til að sjá þau á morgun.

Gréta Björg er núna komin í þjóðskrá og búin að fá íslenska kennitölu. Hún er líka búin að fá social security númer og við erum búin að sækja um bandarískt vegabréf fyrir hana - við sækjum um það íslenska næst þegar við komum heim.


Eitt svar

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527