Opinberlega til - 25 Okt 2007

Fæðingarvottorðið kom í pósti í gær og þar með er Gréta Björg opinberlega til og opinberlega lítill Bandaríkjamaður. Okkur til mikillar ánægu var nafnið hennar og nöfnin okkar skrifuð rétt en auðvitað án séríslenskra stafa. Næsta mál á dagskrá er því að fara og fá löglegt afrit af skírteininu og senda Þjóðskrá svo að daman verði líka opinberlega Íslendingur. Við munum reyndar líka þurfa að senda beiðni um að nafninu hennar verði breytt úr Greta Bjorg í Gréta Björg því að Þjóðskrá skráir nafnið víst nákvæmlega eins og það er á fæðingarskírteininu. Annað mál á dagskrá er svo að reyna að ná mynd af Grétu Björgu á hvítum bakgrunni, með opin augu þar sem hún hrofir beint fram og fara svo á pósthúsið að sækja um vegabréf (já, maður sækir um vegabréf á pósthúsinu!). Það tekur víst óratíma að fá vegabréf þessa dagana svo að það er best að vera ekkert að þessu á síðustu stundum fyrir Íslandsheimsókn.

Gréta Björg átti sitt fyrsta óværa kvöld í gærkvöldi. Litla skinnið átti í einhverju basli með prumpið og vakti sjálfa sig af værum blundi. Þegar þetta var svo loksins liðið hjá  klukkan hálftólf þá sofnaði mín eftir tvo sopa á brjóstinu og svaf í fimm tíma. Ég vona bara svo innilega að hún sé ekki að breytast í kveisubarn það er svo erfitt að sjá hana svona.

Núna finnst mér hún meðvitað farin að setja hendurnar upp í sig. Þumminn hefur ekki komist inn en það eina sem þarf að gerast er að hún fatti að rétta úr honum því hún sýgur beinið á endanum oft. Snuddan hefur komist upp í hana nokkrum sinnum en ef hún tottar hana þá spýtir hún henni út úr sér mjög fljótt og sármóðguð.

Uppáhaldsstaðurinn hennar er svo auðvitað brjóstið og yfirleitt ef hún kúrir við hliðina á mér byrjar hún að færa hausinn í áttina að brjóstinu. Oft er hún orðin rammskökk því að það gengur aðeins hægar að færa bossann og restina af líkamanum.

Ég var að ganni að kíkja á hvað börn eiga að geta gert á hvaða aldri og held ég að hún geri allt sem hún á að geta fyrir eins mánaða þó ég sé ekki viss um hvort hún vilji frekar horfa á andlit en eitthvað annað eins og í áttina að glugganum (birtunni). Hún virðist líka ofsalega sterk og allt sem við kemur hreyfingu og styrkleika gerði hún á allra fyrstu dögunum. Í gær lá hún á bringunni á mér og ég hálfhallaði aftur. Hún var með höfuðið á milli brjóstanna en eftir smástund var hún búin að spyrna sér upp á axlirnar.

Jóhanna Jóhanna

2 svör

  1. lítill massi hér á ferð eða…

    Sagði Gréta — 25 Okt 2007 @ 10:35

  2. Vonandi heldur hún áfram að vera svona vær eins og hún hefur verið og kröftug - svona var pabbi hennar líka :)
    kveðjur og knús

    Sagði amma Birna — 25 Okt 2007 @ 5:15

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527