Þumminn eða snuddan - 22 Okt 2007

Gréta Björg var eitthvað byrjuð að kvarta áðan í fanginu á mér þegar þumallinn datt upp í hana og mikið fannst henni það nú gott. Það hefur verið heldur erfitt að fá hana til að taka snuðið og hefur það aðeins tekist þrisvar í örskamma stund í einu. Yfirleitt þegar við reyni að troða snuðinu upp í hana kúgast hún svo það er spurning hvort hún muni eftir þummanum næst þegar sogþörfin án svengdar segir til sín - eða kannksi verður hún svo heppin að hann dettur upp í hana ósjálfrátt. Það væri nú svolítið skondið ef hún verður eins og nafna sín í Svíþjóð.

Gréta Björg viriðst ætla að fylgja bókinni vel og nú um helgina, 14-16 daga gömul, tók hún 2-3 vikna vaxtarkippinn. Núna bíð ég “spennt” eftir þeim næsta við 4-6 vikna aldur. Það var erfitt að gera henni til hæfis um helgina en í nótt var hún meira hún sjálf og sparaði ekki ósjálfráðu broskippina eftir gjafir.

Jóhanna Jóhanna

5 svör

  1. úff.. það er rosalega erfitt að venja börn af þumlinum, ég myndi reyna eins og þú getur að fá hana til að taka snuð í staðinn.. kannski vill hún aðra tegund, sílikon eða latex.. þetta er voða basl fyrst :D mér hefur fundist gott að banka laust í snuðið þegar það er í munninum á barninu þangað til barnið byrjar að sjúga.. vona að þetta hjálpi ykkur líka :D

    Sagði Emma — 22 Okt 2007 @ 1:37

  2. Prufa bankið næst :-) Svo erum við bara með tvær gerðir af snuðum svo að það er spurning um að halda áfram að leita og annað er svona fyrirburasnuð. Annars held ég hún hafi ekki mikla þörf fyrir þetta enn sem komið er - hún virðist aðalega þurfa að sjúga þegar hún er svöng en annars ekki.

    Sagði Jóhanna — 22 Okt 2007 @ 2:11

  3. Ég segi það samam að það er ósköp þægilegt ef börn vilja snuð. Mínir drengir voru nú ekki mjög duglegir við snuðið og Arnar vildi ALDREI snuð. Ég var mjög ákveðin í að Einar Björn tæki snuð og því var troðið upp í hann á fyrstu dögunum og það lafði þanga til hann hennti því sjálfur 1 og 1/2 árs. Það hjálpaði stundun að nudda því uppí góminn til að hann tæki það sem ungabarn.
    Gangi ykkur vel :-)
    kv.
    Björg

    Sagði Björg — 22 Okt 2007 @ 2:46

  4. Ég verð að taka undir með henni Björgu. Hvorug minna tók snuð og þó reyndi ég það oft og markvisst með Hóffýju Láru. Hún á snuð en þegar hún fær að í hendurnar nagar hún það eins og hvert annað dót og fleygir því svo frá sér :)

    Sagði Sigrún — 22 Okt 2007 @ 4:09

  5. Finnst líklegt að hún verði ekki mikil snuddustelpa. Ég hef nú ekki reynt að troða því upp í hana markvisst og alls ekki á hverjum degi enda virðist hún ekki þurfa mikið á því að halda - er yfirleitt svo vær og góð og kvartar bara ef það er eitthvað til að kvarta yfir.

    Sagði Jóhanna — 23 Okt 2007 @ 8:28

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527