- Kaffigöngutúr - 28 Okt 2007
-
Litli Ameríkaninn fór á Starbucks í dag þegar foreldrarnir voru orðnir kaffiþyrstir.


Síðasta föstudag gerðum við tilraun til að taka mynd fyrir vegabréfið. Við smelltum af 105 myndum til að reyna að ná einni samkvæmt stöðlunum. Við höldum að tvær þessara 105 mynda séu nógu nálægt stöðlunum til að vera samþykktar.
-
5 svör
Október, 2007
- Göngutúr á Walnut St - 27 Okt 2007
-

Mæðgurnar á leiðinni út

Í pokanum hjá pabba
Fórum í göngutúr á Walnut St áðan og komum meðal annars við í Willams-Sonoma og keyptum Sufflé form. Stefnan er sú að bakarameistarinn hún Gréta systir baki fyrir okkur þegar þau Gummi og mamma og pabbi koma.
Það er verður haustlegra með hverjum deginum hjá okkur núna -haustlitir og laufin byrjuð að falla af trjánum svo er hitinn ekki lengur yfir 20 gráðum en það er nú samt mjög notalegt veður.
-
3 svör
- Spenntar greipar - 25 Okt 2007
-

-
3 svör
- Opinberlega til - 25 Okt 2007
-
Fæðingarvottorðið kom í pósti í gær og þar með er Gréta Björg opinberlega til og opinberlega lítill Bandaríkjamaður. Okkur til mikillar ánægu var nafnið hennar og nöfnin okkar skrifuð rétt en auðvitað án séríslenskra stafa. Næsta mál á dagskrá er því að fara og fá löglegt afrit af skírteininu og senda Þjóðskrá svo að daman verði líka opinberlega Íslendingur. Við munum reyndar líka þurfa að senda beiðni um að nafninu hennar verði breytt úr Greta Bjorg í Gréta Björg því að Þjóðskrá skráir nafnið víst nákvæmlega eins og það er á fæðingarskírteininu. Annað mál á dagskrá er svo að reyna að ná mynd af Grétu Björgu á hvítum bakgrunni, með opin augu þar sem hún hrofir beint fram og fara svo á pósthúsið að sækja um vegabréf (já, maður sækir um vegabréf á pósthúsinu!). Það tekur víst óratíma að fá vegabréf þessa dagana svo að það er best að vera ekkert að þessu á síðustu stundum fyrir Íslandsheimsókn.
Gréta Björg átti sitt fyrsta óværa kvöld í gærkvöldi. Litla skinnið átti í einhverju basli með prumpið og vakti sjálfa sig af værum blundi. Þegar þetta var svo loksins liðið hjá klukkan hálftólf þá sofnaði mín eftir tvo sopa á brjóstinu og svaf í fimm tíma. Ég vona bara svo innilega að hún sé ekki að breytast í kveisubarn það er svo erfitt að sjá hana svona.
Núna finnst mér hún meðvitað farin að setja hendurnar upp í sig. Þumminn hefur ekki komist inn en það eina sem þarf að gerast er að hún fatti að rétta úr honum því hún sýgur beinið á endanum oft. Snuddan hefur komist upp í hana nokkrum sinnum en ef hún tottar hana þá spýtir hún henni út úr sér mjög fljótt og sármóðguð.
Uppáhaldsstaðurinn hennar er svo auðvitað brjóstið og yfirleitt ef hún kúrir við hliðina á mér byrjar hún að færa hausinn í áttina að brjóstinu. Oft er hún orðin rammskökk því að það gengur aðeins hægar að færa bossann og restina af líkamanum.
Ég var að ganni að kíkja á hvað börn eiga að geta gert á hvaða aldri og held ég að hún geri allt sem hún á að geta fyrir eins mánaða þó ég sé ekki viss um hvort hún vilji frekar horfa á andlit en eitthvað annað eins og í áttina að glugganum (birtunni). Hún virðist líka ofsalega sterk og allt sem við kemur hreyfingu og styrkleika gerði hún á allra fyrstu dögunum. Í gær lá hún á bringunni á mér og ég hálfhallaði aftur. Hún var með höfuðið á milli brjóstanna en eftir smástund var hún búin að spyrna sér upp á axlirnar.
-
2 svör
- Kósý - 24 Okt 2007
-
5 mínútum síðar var mín búin að koma höndunum undan teppinu. Henni virðist ekki finnast neitt voðalega notalegt að vera svona reyfuð. Henni finnst samt æðislegt að vera í kuðli í slinginu.
Og öðrum 5 mínútum síðar þá er stúlkan sofnuð hjá pabba sínum:
Allt gengur vel hjá okkur og Gréta Björg virðist dafna vel og almennt líða vel. Naflastúfurinn er dottin af og undir honum leyndist lítill krúttlegur nafli. -
4 svör
- Þumminn eða snuddan - 22 Okt 2007
-
Gréta Björg var eitthvað byrjuð að kvarta áðan í fanginu á mér þegar þumallinn datt upp í hana og mikið fannst henni það nú gott. Það hefur verið heldur erfitt að fá hana til að taka snuðið og hefur það aðeins tekist þrisvar í örskamma stund í einu. Yfirleitt þegar við reyni að troða snuðinu upp í hana kúgast hún svo það er spurning hvort hún muni eftir þummanum næst þegar sogþörfin án svengdar segir til sín - eða kannksi verður hún svo heppin að hann dettur upp í hana ósjálfrátt. Það væri nú svolítið skondið ef hún verður eins og nafna sín í Svíþjóð.
Gréta Björg viriðst ætla að fylgja bókinni vel og nú um helgina, 14-16 daga gömul, tók hún 2-3 vikna vaxtarkippinn. Núna bíð ég “spennt” eftir þeim næsta við 4-6 vikna aldur. Það var erfitt að gera henni til hæfis um helgina en í nótt var hún meira hún sjálf og sparaði ekki ósjálfráðu broskippina eftir gjafir.
-
5 svör
- Sending frá Amazon - 20 Okt 2007
-
Við fengum bleiu og þurrku pakkann frá Amazon í gær. Aldrei hefði mér dottið í hug að ég ætti eftir að kaupa bleiur á netinu en það er þó nokkuð ódýrara og óneitanlega miklu þægilegra á fá þetta bara sent upp að dyrum í stað þess að skrötla með þetta heim úr búðinni.
Mér finnst ég sjá dagamun á Grétu Björgu núna og ég finn að hún er að þyngjast. Það verður því gaman að fara til barnalæknisins í byrjun nóvember og fá nákvæmar tölur. Enn skemmtilegra verður samt að fá mömmu og pabba og Grétu og Gumma til okkar eftir aðeins 13 daga en þau verða komin alla leið til okkar þegar Gréta Björg er nákvæmlega fjögurra vikna.
-
3 svör
- Sjúkratryggð - 19 Okt 2007
-
Við fórum í göngutúr númer tvö í dag. Leiðin lá á launaskrifstofuna í Pitt til að breyta sjúkratryggingunni minni og bæta Grétu Björgu við og tekur tryggingin gildi 1. nóvember. Gréta Björg er nú samt tryggð á mínu nafni þangað til þar sem mín trygging tryggir börn í einn mánuð frá fæðingu án þess að maður skrái barnið og borgi sérstaklega fyrir það.

Í pokanum hjá pabba

Í fötunum frá langafa. Gréta Björg var ekki sátt við að pabbi hennar notaði flassið þegar hann tók myndina

Mæðgurnar
-
4 svör
- Göngutúr í pokanum - 15 Okt 2007
-
Við fengum burðarpokann sem David og Tessa hafa ekkert notað og skelltum okkur í smá göngutúr í góða veðrinu nú í kvöld. Það var 21 gráðu hita svo að Gréta Björg var bara á samfestingnum og með ullarhúfu.


Gréta Björg hefur verið dugleg að drekka og greinilegt að hún hefur tekið út 7-10 daga vaxtarkippinn á réttum tíma. Síðan á laugardagskvöld hefur hún viljað drekka á klukkustunda fresti en yfirleitt bara úr öðru brjóstinu í einu. Nú í dag tók hún hins vegar 4 og hálfs klukkustunda svefntörn og gerði mömmuna auðvitað stressaða yfir því.
-
5 svör
- Gengur vel - 14 Okt 2007
-
Gréta Björg er orðin 9 daga gömul og í gær var settur dagur! Það gengur allt voða vel hjá okkur. Við fórum til barnalæknisins síðasta miðvikudag og Gréta Björg var byrjuð að þyngjast síðan við fórum af spítalanum en þó ekki búin að ná fæðingarþyngdinni. Þannig að við þurfum ekkert hitta lækninn aftur fyrr en hún verður mánaðargömul.
Takk allir fyrir allar kveðjurnar og tölvupóstana (sem ég mun svara, allt tekur sinn tíma núna…). Nokkrar myndir í lokin.


-
7 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
