- Elite og mathákurinn í bumbunni - 05 Sep 2007
-
Ég er víst komin í svokallaðan elite “uppfinningamanna”-hóp hjá skólanum. Frekar skondið, ég hef nú ekki gert neitt sérstakt nema vinna GSR vinnuna mína og vera heppin með GSR verkefni. Þetta snýst um það að sótt var um einkaleyfi á “uppfinningunni” úr 2005 pappírnum og að nú er fyrirtæki búið að kaupa rétt til að nota hana, svo að ef fyrirtækið mun einhvern tímann græða á þessu þá mun skólinn líka fá hluta af þeim gróða. Það verður einhver móttaka í lok mánaðarins. Kvíði nú eiginlega bara fyrir því, kann ekkert að vera í kokteilboðum þar sem ég þekki nánast engan.
Bumbustelpan er enn kröfuhörð á mat og er orðin ansi sterk bara, ætli hún verði ekki bara stór og þung (svona meðal á íslenskan mælikvarða og hlunkur á bandarískan). Það er mjög skondið að finna fyrir hnjánum og bossanum þrýstast út, greinilega orðið þröngt - mittismálið er samt komið yfir 100 cm! Svo er bumbuskoðun á föstudaginn.
-
Jóhanna
5 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Frábært hjá þér Jóhanna mín. Nú styttist aldeilis í að ég fái litla frænku, mikið hlakka ég til. Kveðja, Bryndís
Sagði Bryndís — 05 Sep 2007 @ 5:08
Glæsilegt hjá þér elsku stelpan min.
Knús og koss Mamm.
Sagði Mamma — 06 Sep 2007 @ 7:54
Skil þig MJÖG vel með kokteilboðin.
Það er bara vera dugleg að brosa og jákvæð,þá er það ekki svo slæmt.
Knús. MAMMA
Sagði Mamma — 06 Sep 2007 @ 8:40
Til hamingju með að vera komin í elítuna!! Þú átt klárlega heima þar :-) Þú mátt endilega segja mér númerið eða keyword á patent-umsókninni ykkar svo ég geti kíkt á þetta allt (eða frekar látið samsarfsmenn mína útskýra fyrir mér :0))
Knús, Brynhildur
Sagði Brynhildur — 06 Sep 2007 @ 10:26
Til hamingju Jóhanna mín þú sómir þér vel í elitunni!
Sagði tengdó — 06 Sep 2007 @ 4:06