- 38 vikur - skuggabumba - 29 Sep 2007
-
Ein bumbumynd tekin fyrr í dag í Schenley Park. Bumban er vaxin upp úr óléttubolunum!

Annars vorum við hjá ljósu í gær og allt í góðu hjá litlunni. Hún sneri með lappir og hendur fram en bakið aftur svo að ljósunni fannst hún ekki getað sagt neitt um hvað hún væri orðin stór. Sagði reyndar að henni fyndist hún bara alveg passleg, hvað sem það þýðir!
Kíktum líka á Nakashima húsgagna sýningu í CMU. Þarna voru bara húsgöng sem CMU á og eru enn í notkun. Alltaf skemmtilegt þegar frægir hlutir verða ekki bara að safngripum.
-
6 svör
September, 2007
- Klipping - 28 Sep 2007
-
Tvær myndir fyrir mömmu. Brá mér í klippingu í gær, það var sko kominn tími til enda fór ég síðast um jólin 2006! Núna lét ég bara klippa það slétt, engar styttur og rugl. Hárgreiðslufólki finnst alltaf svo gaman að fá að gera eitthvað meira við hárið á mér þannig ég á yfirleitt í baráttu við að fá að hafa það bara slétt!

Síðan er það bara skoðun hjá ljósu á eftir. Annars er allt með kyrrum kjörum og litlunni virðist finnast gott að kúra. Fæ reyndar slatta af samdráttum.
-
2 svör
- Jóhanna Innovator - 25 Sep 2007
-
Við Jóhanna brugðum okkur í partý sérstaklega fyrir uppfinnandi fólk. Þar var í boði ágætis pinnamatur og ólseigt kjöt. Þegar heim var komið var smellt af myndi til að dokúmentera hvað Jóhanna var fín í dressinu sínu

Reyndar er forláti verðlaunagripurinn úr gleri sem Jóhanna fékk ekki inni á myndinni. Hann lítur mjög mikið út eins og svona “achievement award” sem maður sér í bíómyndum.
-
3 svör
- Ljósa - 21 Sep 2007
-
Jæja, við vorum að koma frá ljósunni. Á morgun verða það formlega 37 vikur og barnið þar með fullburða. Allt kom vel út og streptokokka B prófið sem gert var síðast var neikvætt svo að ég þarf ekki að fá sýklalyf í æð í fæðingunni - jeij! Ljósan áætlaði að litlan væri orðin 6 til 6,5 pund (11-12 merkur) og líklega nær 6,5 - það passar líka vel við 5,5 pund eins og áætlað var fyrir tveim vikum. Um helgina er planið að klára að undirbúninginn fyrir komu litlunnar.
-
3 svör
- SODA, San Francisco - 10 Sep 2007
-
Verð bara aðeins að monta mig af Palla. Pappírinn hans var valinn á ráðstefnu í San Francisco - 455 sóttu um og 135 komust að og þarna eru að keppa margir af frægustu prófessorunum. Ráðstefnan verður 20. - 22. janúar 2008. Þannig að það er strax komið á hreint hvenær við stelpurnar verðum skildar eftir einar heima í fyrsta skipti! Get ekki sagt neitt meira um þetta enda of flókið fyrir mig en þetta var rosa flott niðurstaða, hann sýndi til dæmis fram á að tveir pappírar á tveimur ólíkum en skildum sviðum eru í raun sami pappírinn en enginn var bara búin að sjá það fyrr.
-
2 svör
- Ljósa - 07 Sep 2007
-
Var að koma frá ljósmóðurinni. Allt í góðu og daman enn í höfuðstöðu, legbotninn 35,5 sm - ég er alltaf akkúrat hálfum sentimetri yfir vikunum! Ég bað ljósuna að giska á hvað daman væri orðin stór og giskaði hún á að hún væri orðin 5 og hálft pund (2495 grömm eða 10 merkur).
Við erum búin að panta kurteisisheimsókn til barnalæknis í næstu viku og vonandi líst okkur það vel á að við þurfum ekki að fara annað.
-
Eitt svar
- Elite og mathákurinn í bumbunni - 05 Sep 2007
-
Ég er víst komin í svokallaðan elite “uppfinningamanna”-hóp hjá skólanum. Frekar skondið, ég hef nú ekki gert neitt sérstakt nema vinna GSR vinnuna mína og vera heppin með GSR verkefni. Þetta snýst um það að sótt var um einkaleyfi á “uppfinningunni” úr 2005 pappírnum og að nú er fyrirtæki búið að kaupa rétt til að nota hana, svo að ef fyrirtækið mun einhvern tímann græða á þessu þá mun skólinn líka fá hluta af þeim gróða. Það verður einhver móttaka í lok mánaðarins. Kvíði nú eiginlega bara fyrir því, kann ekkert að vera í kokteilboðum þar sem ég þekki nánast engan.
Bumbustelpan er enn kröfuhörð á mat og er orðin ansi sterk bara, ætli hún verði ekki bara stór og þung (svona meðal á íslenskan mælikvarða og hlunkur á bandarískan). Það er mjög skondið að finna fyrir hnjánum og bossanum þrýstast út, greinilega orðið þröngt - mittismálið er samt komið yfir 100 cm! Svo er bumbuskoðun á föstudaginn.
-
5 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527


