- Enginn tími til að vinna - 29 Ágú 2007
-
Ég er í fullri vinnu við að borða þessa dagana og ef ég er ekki að borða eða útbúa eitthvað til að borða þá er ég að pæla í hvað ég eigi að fá mér næst. Það er bókstaflega vont að vera svöng núna og þegar svengdin segir til sín er ekki mikill tími til stefnu til að útbúa eitthvað. Er að verða brjáluð á þessu en þetta er víst nauðsynlegt til að minnka samdrætti, koma í veg fyrir að þeir breytist í alvöru verki og litlan mæti of fljótt.
Við Palli erum búin að fara í gegnum fataskápinn okkar og henda því sem ekki hefur verið notað í nokkur ár eða er úr sér gengið. Tæmdum eina kommoðu sem verður núna notuð fyrir barnaföt og sem skiptiborð. Síðan er ýmislegt sem á eftir að gera áður en litlan kemur.
-
Jóhanna
Eitt svar
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Elsku Jóhanna og Palli.
Gangi ykkur vel í öllum undirbúningnum.
Knú frá Lundi. Mamma-pabbi-Gréta og Gummi.
Sagði Gréta — 31 Ágú 2007 @ 9:31