- 2 mánuðir - 13 Ágú 2007
-
Aðeins tveir mánuðir í settan dag, 13. október 2007!
Ég lenti í því að detta illa kylliflöt á bumbuna. Mikið rosalega var ég hrætt en það er allt í lagi hjá litlunni svo við öndum léttar. Gat ekki staðið upp fyrir hræðslu og Palli sagði að ég hafi grenjað: “Ég datt á bumbuna, ég datt á bumbuna …”. Fór á sjúkrahús og var í monitor í 4 klst þar sem fylgst var með að allt væri stöðugt hjá litlunni og engir samdrættir.
Mamma, pabbi, Gréta og Gummi eru búin að bóka sína heimsókn til okkar og Birna og Jón eru að plana sína :-) O, hvað það á eftir að vera gaman hjá okkur.
Annars, gengur bara ágætlega í skólanum. Ég er búin að ákveða að vera í engum kúrsum í haust og bara í rannsóknum. Núna er markmiðið að ég verði með “proposal” áður en litlan kemur, en það kemur bara í ljós hvort það gengur upp. Vona það! Ég þarf líka að setja saman poster (a.m.k. gera uppkast að því) fyrir ráðstefnu í lok október. Ég fer nú samt ekkert á hana. Svo það er nóg að gera!
-
Jóhanna
Eitt svar
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Ugh! Mikið hafið þið orðið skelfd! Það fór alveg um mig við að lesa færsluna. En það er gott að heyra að útlendingarnir lögðu sig fram um að fylgjast með litlu ungfrú Melsted og ennþá betra að heyra að hún er í góðu formi!
Sagði Arndís — 14 Ágú 2007 @ 3:27