Ágúst, 2007

Enginn tími til að vinna - 29 Ágú 2007

Ég er í fullri vinnu við að borða þessa dagana og ef ég er ekki að borða eða útbúa eitthvað til að borða þá er ég að pæla í hvað ég eigi að fá mér næst. Það er bókstaflega vont að vera svöng núna og þegar svengdin segir til sín er ekki mikill tími til stefnu til að útbúa eitthvað. Er að verða brjáluð á þessu en þetta er víst nauðsynlegt til að minnka samdrætti, koma í veg fyrir að þeir breytist í alvöru verki og litlan mæti of fljótt.

Við Palli erum búin að fara í gegnum fataskápinn okkar og henda því sem ekki hefur verið notað í nokkur ár eða er úr sér gengið. Tæmdum eina kommoðu sem verður núna notuð fyrir barnaföt og sem skiptiborð. Síðan er ýmislegt sem á eftir að gera áður en litlan kemur.


Eitt svar
Skólinn að byrja aftur og ljósa - 24 Ágú 2007

Þá byrjar skólinn aftur í næstu viku, sem minnir mig á að ég þarf að segja mig úr eina kúrsinum sem ég er skráð í. Ætla nefnilega ekki að vera í neinum kúrsum þetta misserið. Ég á bara einn eins eininga skyldukúrs eftir og svo einn til að fylla upp í einingar svo að það getur alveg beðið aðeins. Palli fær svo að kenna léttan kúrs, sem hann hefur kennt áður, þetta misserið og svo frí frá kennslu eftir áramót.

Ég fór til ljósu síðasta þriðjudag og allt kom vel út og litlan enn í höfuðstöðu en liggur samt hátt og dugleg að sparka undir rifbeinin, hún hefur nú samt bara hitt í þau einu sinni. Hún hnoðast líka mikið og virðist endalaust vera að reyna finna betri stellingu án þess að vera að sparka. Það er greinilega orðið þröngt. Það tók að vísu tíma að finna hjartsláttinn en daman sparkaði samt á fullu á meðan ljósan var að leita að honum. Það var því alveg ljóst að hjartslátturinn væri einhvers staðar. Næsta skoðun er svo eftir tvær vikur. Þá verð ég komin tæpar 35 vikur en það þýðir að fyrir þann tíma þurfum við helst að vera búin að velja barnalækni. Það er sko flókið að eiga barn í Ameríku, svo mikið sem þarf að skipuleggja og hugsa um og ekkert sem gerist bara sjálfkrafa.


Engin svör
Nokkrar myndir í tilefni dagsins - 20 Ágú 2007

20aug05.jpg

20. ágúst 2005

20aug06.jpg

20. ágúst 2006

bumba32.jpg

Bumban, laugardaginn 18. ágúst 2007

Komin 32 vikur

Palli er á ráðstefnu í Princeton svo ég verð ein heima fram á miðvikudagskvöld. Á morgun er svo mæðraskoðun, fyrsta skoðunin sem ég fer ein í.

Núna er ég búin að vera hér í meira en þrjú ár og við Palli höfum verið lengur saman í Ameríku en á Íslandi - svolítið skrítið.


8 svör
2 mánuðir - 13 Ágú 2007

Aðeins tveir mánuðir í settan dag, 13. október 2007!

Ég lenti í því að detta illa kylliflöt á bumbuna. Mikið rosalega var ég hrætt en það er allt í lagi hjá litlunni svo við öndum léttar. Gat ekki staðið upp fyrir hræðslu og Palli sagði að ég hafi grenjað: “Ég datt á bumbuna, ég datt á bumbuna …”. Fór á sjúkrahús og var í monitor í 4 klst þar sem fylgst var með að allt væri stöðugt hjá litlunni og engir samdrættir.

Mamma, pabbi, Gréta og Gummi eru búin að bóka sína heimsókn til okkar og Birna og Jón eru að plana sína :-) O, hvað það á eftir að vera gaman hjá okkur.

Annars, gengur bara ágætlega í skólanum. Ég er búin að ákveða að vera í engum kúrsum í haust og bara í rannsóknum. Núna er markmiðið að ég verði með “proposal” áður en litlan kemur, en það kemur bara í ljós hvort það gengur upp. Vona það! Ég þarf líka að setja saman poster (a.m.k. gera uppkast að því) fyrir ráðstefnu í lok október. Ég fer nú samt ekkert á hana. Svo það er nóg að gera!


Eitt svar
Hitabylgja - 06 Ágú 2007

Það hefur verið ansi heitt hjá okkur undanfarna viku, eiginlega byrjaði þetta daginn eftir að mamma fór! Það hefur verið svo heitt að fína loftkælingin okkar hefur ekki undan að kæla íbúðina og rétt nær að halda svefnherberginu köldu. Það er því ekkert eldað á heimilinu núna, enda verður ástandið ansi slæmt ef kveikt er á ofninum. Ég þamba vatn enda er sagt að helsta ástæða fyrirburafæðinga á sumrin sé ofþornun móður.


3 svör
Ljósa - 03 Ágú 2007

Vorum að koma frá ljósu. Allt eins og það á að vera. Fékk út úr sykursýkisprófinu sem ég fór í síðast og ég er eins langt frá því að vera með sykursýki og mögulegt er. Litla daman var með höfuðið niður, bakið til vinstri og lappirnar til hægri. Núna er aftur búið að stytta tíma milli skoðana og er næsta skoðun eftir tvær vikur.


2 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527