- Fæðingardeildin skoðuð - 24 Júl 2007
-
Við fórum á túr með ljósmóðurinni um fæðingardeildina á spítalanum í gær og fengum ýmsar upplýsingar hverning maður ber sig að þegar stóri dagurinn rennur upp. Okkur leist bara rosalega vel á þetta allt saman og erum líka enn sannfærðari um að það var rétt ákvörðun að velja að vera hjá ljósmóður í stað fæðingarlæknis. Það eru samt alltaf sér læknar á vakt og til taks fyrir ljósmæðurnar og hún sagði okkur alveg í hvaða tilfellum þær kölluðu á lækni og sagði það væri nú mjög sjaldgæft að þess þyrfi. Þetta var sko ekkert spítalalegt bara hlýlegt og fínt, allt nema triage area en það er líka bara hálfgerð biðstofa. Það sem mér fannst hins vegar æðislegast að sjá var í postpartum area þar sáust engin börn, þau voru bara öll inni á herbergjum hjá mömmunum. Í labor og postpartum room eru sér baðherbergi með öllu og gistiaðstaða fyrir pabbann. Það virðist líka vera að maður megi hafa allt eins og maður vill einu reglurnar voru fjöldinn sem maður hefur með sér í triage og labor og heimsóknartími í postpartum. Og eina sem er ekki sveiganlegt er heimsóknartíminn og síðan þarf barnalæknir að útskrifa barnið, ljósmæður og fæðingarlæknar mega útskrifa mömmuna en ekki barnið. Það er nuddpottur og alls konar dót til að lina kvalir. Svo var annað sem var mjög krúttlegt en í labor herberginu er ofn með fullt af teppum sem eru hituð til að nota eftir fæðinguna ef maður vill. Það var líka sérstakt á sjá þófavarnarkerfið en öll kríli fá armband og ef þau eru tekin út fyrir ákveðið svæði (sem er nú frekar takmarkað) án þess að vera í fylgd með foreldrunum sem eru þau einu sem fá armband líka þá læsist allur spítalinn. Dálítið óhuggulegt að það sé nauðsynlegt að vera með svona kerfi.
-
Jóhanna
2 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Pínu spes með þjófavarnarkerfið… veit ekki hvort Svíar eru með svona, það kæmi samt ekki á óvart því þetta er þjófhræddasta þjóð sem til er :)
Sagði Gréta — 25 Júl 2007 @ 1:58
Þetta hljómar allt vel - gott fyrir ykkur að vera búin að skoða aðstæður og vita að hverju þið gangið. kveðja tengdó
Sagði mamma/tengdó — 27 Júl 2007 @ 5:21