Náði :-) - 19 Júl 2007

Nú hefur deildin mín formlega trú á mér og að ég geti klárað þetta blessaða nám. Var að fá að vita að ég náði fræðilega prófinu sem ég tók í byrjun júní. Fæ reyndar ekki formlegt bréf um það fyrr en í næstu viku en deildin var svo almennileg að senda e-mail aðeins fyrr. Þar með er ég búin að ná öllum þremur prófunum (náði hinum í fyrra). Jeij! Nú á ég “bara” eitt stykki doktorsverkefni eftir!

Ég dreif okkur Palla því út í Willams Sonoma að kaupa blender en hann hefur langað í svoleiðis svo lengi síðan fórum við á uppáhalds tælenska staðinn okkar á Walnut til að halda upp aðeins upp á þetta.

O, hvað ég hlakka til að henda glósunum mínum -það er alveg nóg að eiga kennslubækurnar núna- en ég hef ekki þorað að gera það af ótta við að þá myndi ég falla.

Jóhanna Jóhanna

9 svör

  1. Til hamingju! :) Frábært!

    Sagði Arndís — 20 Júl 2007 @ 3:25

  2. Frábært hjá þér. Til hamingju.

    Sagði Bryndís — 20 Júl 2007 @ 3:28

  3. Glæsilegt hjá þér elsku stelpan mín.
    Hlakka til að sjá ykkur á þriðjudagskvöldið. Knús. Mamma.

    Sagði Mamma — 20 Júl 2007 @ 5:37

  4. innilega hjartanlega til lukku

    kveðja frá Boston

    Sagði baldur — 20 Júl 2007 @ 8:09

  5. En flott hjá þér - til hamingju! Þú ert alltaf svo dugleg :)

    Sagði Guðlaug — 21 Júl 2007 @ 10:22

  6. Til hamingju ;)

    Sagði Helga Dóra — 22 Júl 2007 @ 1:19

  7. Takk fyrir allar saman. Er mjög kát!

    Sagði Jóhanna — 24 Júl 2007 @ 12:42

  8. Jibbíkóla :D Til hamingju!

    Sagði Baldvin — 24 Júl 2007 @ 1:23

  9. Til hamingju Jóhanna mín - flott hjá þér! bestu kveðjur
    tengdó

    Sagði mamma/tengdó — 27 Júl 2007 @ 5:17

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527