Júlí, 2007

Mamma í heimsókn - 31 Júl 2007

Þá er mamma farin frá okkur. Núna er það bara að bíða og hlakka til næstu heimsóknar og þá verður litla hnoðrastelpan líklega mætt. Það var alveg æðislegt að fá hana og við gerðum svo margt skemmtilegt, aðalega að undirbúa komu litlunnar en líka að slappa af og dúlla okkur. Nokkrar myndir:

innkaup.jpg

Stórinnkaup

pitsa.jpg
Heimagerð pitsa
crepes.jpg
Beðið eftir Crepes

maedgur.jpg

Á CMU campus


3 svör
29 vikur - 28 Júl 2007

mamma_joa_29.jpg

palli_joa_29.jpg


2 svör
Fæðingardeildin skoðuð - 24 Júl 2007

Við fórum á túr með ljósmóðurinni um fæðingardeildina á spítalanum í gær og fengum ýmsar upplýsingar hverning maður ber sig að þegar stóri dagurinn rennur upp. Okkur leist bara rosalega vel á þetta allt saman og erum líka enn sannfærðari um að það var rétt ákvörðun að velja að vera hjá ljósmóður í stað fæðingarlæknis. Það eru samt alltaf sér læknar á vakt og til taks fyrir ljósmæðurnar og hún sagði okkur alveg í hvaða tilfellum þær kölluðu á lækni og sagði það væri nú mjög sjaldgæft að þess þyrfi. Þetta var sko ekkert spítalalegt bara hlýlegt og fínt, allt nema triage area en það er líka bara hálfgerð biðstofa. Það sem mér fannst hins vegar æðislegast að sjá var í postpartum area þar sáust engin börn, þau voru bara öll inni á herbergjum hjá mömmunum. Í labor og postpartum room eru sér baðherbergi með öllu og gistiaðstaða fyrir pabbann. Það virðist líka vera að maður megi hafa allt eins og maður vill einu reglurnar voru fjöldinn sem maður hefur með sér í triage og labor og heimsóknartími í postpartum. Og eina sem er ekki sveiganlegt er heimsóknartíminn og síðan þarf barnalæknir að útskrifa barnið, ljósmæður og fæðingarlæknar mega útskrifa mömmuna en ekki barnið. Það er nuddpottur og alls konar dót til að lina kvalir. Svo var annað sem var mjög krúttlegt en í labor herberginu er ofn með fullt af teppum sem eru hituð til að nota eftir fæðinguna ef maður vill. Það var líka sérstakt á sjá þófavarnarkerfið en öll kríli fá armband og ef þau eru tekin út fyrir ákveðið svæði (sem er nú frekar takmarkað) án þess að vera í fylgd með foreldrunum sem eru þau einu sem fá armband líka þá læsist allur spítalinn. Dálítið óhuggulegt að það sé nauðsynlegt að vera með svona kerfi.


2 svör
Náði :-) - 19 Júl 2007

Nú hefur deildin mín formlega trú á mér og að ég geti klárað þetta blessaða nám. Var að fá að vita að ég náði fræðilega prófinu sem ég tók í byrjun júní. Fæ reyndar ekki formlegt bréf um það fyrr en í næstu viku en deildin var svo almennileg að senda e-mail aðeins fyrr. Þar með er ég búin að ná öllum þremur prófunum (náði hinum í fyrra). Jeij! Nú á ég “bara” eitt stykki doktorsverkefni eftir!

Ég dreif okkur Palla því út í Willams Sonoma að kaupa blender en hann hefur langað í svoleiðis svo lengi síðan fórum við á uppáhalds tælenska staðinn okkar á Walnut til að halda upp aðeins upp á þetta.

O, hvað ég hlakka til að henda glósunum mínum -það er alveg nóg að eiga kennslubækurnar núna- en ég hef ekki þorað að gera það af ótta við að þá myndi ég falla.


9 svör
Skoðun - 18 Júl 2007

Við fórum til ljósu síðasta föstudag og allt kom vel út :-) Reyndar var ég nú ekkert stressuð um annað enda finn ég vel fyrir skvísunni. Næsta skoðun er svo á föstudaginn eftir rúmar 2 vikur. Við erum líka búin að bóka okkur í túr með ljósunum um spítalann á mánudaginn.

Mamma kemur svo eftir tæpa viku og mér sýnist ég nái að klára uppkastið að pappírnum fyrir þann tíma. Vonandi tekst það, ég stefni nefnilega á að vera í smá fríi þá.


Engin svör
Pappírar - 11 Júl 2007

Það er nóg að gera hjá okkur Palla. Í síðustu viku vann Palli eins og brjálæðingur við að klára að púsla saman pappír fyrir ráðstefnu í janúar 2008. Ég var svo að fá hálf-pappír samþykktan til birtingar í nóvember og síðan þarf ég að klára uppkast að næsta pappír á næstu tveimur vikum.

Það er svo bumbuskoðun hjá okkur á föstudaginn og þá fer ég í sykursýkispróf. Síðan eru bara tæpar tvær vikur í heimsókn mömmu. Jeij.

Við vorum að kaupa fyrsta stóra hlutinn fyrir litlu dúlluna okkar. Við pöntuðum rúmið og það á að koma á föstudaginn. Við setjum það nú samt ekkert saman strax.


2 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527