- iPhone röð og búðarferð - 29 Jún 2007
-
Jæja þá er blessaður iPhone-inn kominn í búðir og enginn virðist halda vatni yfir gripnum. Ég tók mynd af apple búðinni á 5th Ave í NY um daginn en áttaði mig ekki á því að það væri röð til að kaupa iPhone (5 dögum fyrir sölu). Ég náði hins vegar nokkrum myndum af röðinni á Walnut St. hérna rétt hjá okkur, mig grunar að biðin hafi ekki verið jafnlöng.

Apple búðin í NY

Apple búðin í Pittsburgh

Hluti af röðinni í Pittsburgh
Áðan skelltum við okkur í barnabúðina Babies’R'us sem er á stærð við Rúmfatalagerinn og stútfull af dóti. Stæðin næst búðinni voru frátekin fyrir verðandi mæður.

Við slógum ekki hendinni á móti því!
-
Palli
2 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

fyndið, sér stæði en ekki slæmt :)
Sagði greta — 30 Jún 2007 @ 11:40
Hmmm- af hverju röð? Til að vera fyrstur - eða var takmarkað til af þeim??? Æ ég skil þetta víst ekki!
gott hjá ykkur að fara í barnabúðina í staðinn :)
Sagði mamma/tengdó — 04 Júl 2007 @ 4:39